Freyr - 01.10.1958, Blaðsíða 18
314
PRE YR
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 3. og 4. sept.
1958 beinir þeirri ákveðnu áskorun t'l stjómar
Stéttarsambandsins, að bún í samráði og samvinnu
við stjórn Búnaðarfélags íslands beiti sér fyrir því
við ríkisstjórn og Alþingi, að bændum á óþurrka-
svæðunum verði nú þegar veitt nauðsynleg aðstoð
til bjargar bústofni stnum og til varanlegra úrræða,
setn tryggi betur en nú er búskaparafkomu þeirra
í framtíðinni.
Vill fundurinn í því sambandi taka fram og leggja
áherzlu á eftirtaldar leiðir:
1. Fullkomin athugun verði látin fara fram á fóð-
uröflun bænda á öllu óþurrkasvæðinti og verði
henni lokið fyrir septemberlok.
2. Tryggður verði nægur fóðurbætir til afnota á
óþurrkasvæðunum og rannsakaðir allir inöguleik-
ar á heykaupum handa þeim, sem verst eru sett-
ir, þar á meðal verði kannaðir möguleikar á
heymiðlun innan héraða og skiptum á heyi og
fóðurbæti.
3. Haft verði strangt eftirlit með öruggum ásetn-
ingi-
4. Veitt verði óafturkræf framlög og hagkvæm lán
úr Bjargráðasjóði til fóðurkaupa og ríkið greiði
a.m.k. t/2 flutningskostnað á heyi.
5. Komi til verulegrar fækkunar búfjár nú í haust,
vegna skorts á fóðri, fái bændur aðstoð haustið
1959 vegna afurðatjóns og til að koma upp full-
um bústofni aftur hliðstætt og um fjárskipti
væri að ræða. Verði bæturnar miðaðar við þá-
gildandi verðlag.
G. Tryggt verði nægilegt lánsfé til þess að veita
bændttm hagkvæm lán, svo að þeir geti bætt hjá
sér aðstöðu til heyverkunar nteð votheysgeymsl-
um og súgþurrkun til að verjast áföllum sem
þessum.
7. Bættar verði með snöggu átaki samgöngur á
þeim svæðum, þar sem þær eru örðugastar,
þannig að þau komist í öruggt vegasamband við
næstu markaðsstaði og með því unnið gegn eyð-
ingu einstakra byggðarhluta.
Tillögur þessar voru bornar upp í einu lagi
og samþykktar með samhljóða atkvæðum.
15. Votheysgerð og súgþurrkun.
Jónas Pétursson flutti tillögu frá allsherjar-
nefnd og talaði fyrir henni. Meðal annars
skýrði hann frá tilraunum sínum með votheys-
fóðrun sauðfjár, en þær höfðu gefið góða raun.
Aillagan var svo:
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda haldinn að
Bifröst 3. og 4. sept. 1958 skorar á stjórn sambands-
ins og Búnaðarfélags íslands að vinna að því, að
aukin verði vísindaleg fræðsla og hvatning til bænda
um votheysgerð og súgþurrkun."
Samþykkt með samhljóða atkvæðum.
16. Fundartími.
Jónas Pétursson lagði fram þessa tillögu:
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1958 lýsir
ánægju sinni yfir því að hafa að þessu sinni fengið
tækifæri að ræða verðlagsgrundvöllinn áður en
samningum er lokið urn hann og telur rétt og sjálf-
sagt að framvegis verði aðalfundur haldinn áður en
frá samningum er gengið."
Jónas Pétursson. Helgi Símonarson.
Guðm. Magnússon. Eggert Ólafsson.
Guðjón Jónsson. Gunnar Ólafsson.
Tillagan var samþykkt með 18:1 atkvæði.
17. Endurskoðun Iaga um framleiðslu-
ráð o. s. frv.
Sveinn Tryggvason skýrði frá þeirri endur-
skoðun, sem framhafði farið samkvæmt álykt-
un síðasta aðalfundar. Vilhjálmur Hjálmarsson
gat ekki unnið í nefndinni, en í hans stað kaus
stjórn Stéttarsambandsins 3 menn í nefndina
til að vinna með þeim Gunnari Guðbjartssyni
og Jónasi Péturssyni. Kosnir voru: Jón Sigurðs-
son, Páll Zóphóníasson og Sveinn Tryggvason.
Gerði Sveinn nú grein fyrir þeim breytingum,
sem nefnd þessi taldi ráðlegt að gera á lögun-
um.
Síðan las hann upp tillögu, sem stjórn Stétt-
arsambandsins hafði samið og lagði fyrir fund-
inn. Hún var svo:
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1958 lýsir
yfir, að hann er í aðalatriðum smamála þeim tillög-
um til breytinga á lögum nr. 94 frá 5. júní 1947 um
Framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl„ sem nefnd sú,
er kosin var á síðasta aðalfundi, til að endurskoða
lögin, leggur til.
Á þeim grundvelli felur fundurinn stjórn Stéttar-
sambandsins og Framleiðsluráði að semja frumvarp
til laga um breytingar á lögunum og fá það lagt
fyrir næsta Alþingi."
Guðjón Hallgrímsson taldi ástæðu til að
fundarmenn fengju rýmri tíma til athugunar