Freyr - 01.10.1958, Blaðsíða 21
alla, sem alls ekki er byggt eða ætlað til
slíks sýningarhalds. Sláturfélag Suðurlands
lánaði Búnaðarsambandinu hús sitt á Sel-
fossi til sýningarinnar. Forstjóri Sláturfé-
lags, Jón H. Bergs, og forráðamenn þeirrar
stofnunar, sýndu sýningarmálinu alveg
framúrskarandi velvild frá upphafi. Ýmsar
fleiri stofnanir og einstaklingar sýndu Bún-
aðarsambandinu mikla velvild og fyrir-
greiðslu í sambandi við sýninguna, en of
langt mál yrði hér að minnast á nöfn þeirra
allra.
Eins og fyrr greinir komst fyrst veruleg-
ur skriður á undirbúning um miðjan maí.
Hafizt var handa að rækta lóðina og prýða,
girða sýningarsvæðið með vandaðri girð-
ingu, bera ofan í vegi og hlöð umhverfis
húsið.
Skilrúm og innréttingar voru settar í sýn-
ingarsali, ennfremur raflagnir vegna lýs-
ingar o. s. frv. Húsið var málað að utan og
innan að miklu leyti. Hús Sláturfélags Suð-
urlands á Selfoss er geysi stórt og rúmgott.
Það er fyrst og fremst sláturhús, en þrátt
fyrir það ótrúlega hentugt til að halda þar
í sýningu sem þessa. Flatarmál sýningarsal-
anna undir þaki mun hafa verið um 2500
m2, eða V4 ha. Húspláss þetta var gjörnýtt
og raunverulega sá rammi, sem markaði
stærð sýningarinnar innanhúss, því Bún-
aðarsambandið taldi sér ofvaxið að reisa
byggingar til viðbótar.
Þetta stóra húspláss reyndist of lítið, því
sunnudaginn 17. ágúst voru sýningargestir
svo margir, að grípa varð til þess ráðs að
takmarka aðgang inn í húsið til að afstýra
vandnræðum vegna þrengsla og troðnings.
Á planinu og túninu sunnan hússins voru
svo útisýningar á landbúnaðarvélum og
byggingarefni. Er það svæði rúmur hektari
og var mikið af því svæði notað. Bílastæði
höfðu verið útbúin fyrir 600—700 bíla, en
reyndist þó of lítið þegar sýningargestir
voru flestir. Umhverfis sýningarsvæðið var
þétt fánaborg og þegar mild ágústgolan
bærði fánana, fékk staðurinn og umhverfið
hátíðiegan og hrífandi blæ. Það duldist eng-
Búnaðarsamband Suðurlands minntist
hálfrar aldar afmælis síns með veglegri
búnaðarsýningu á Selfossi í ágústmán-
mánuði s. 1. Sýningin stóð í 6 daga og
sóttu hana um 17.000 manns. Fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar, Einar Þor-
steinsson, ráðunautur, hefur skrifað
meðfylgjandi grein um sýninguna fyrir
FREY.
v_____________________________________^
um, að það var hátíð gjörð á Suðurlandi.
Laugardaginn 16. ágúst hafði stjórn Bún-
aðarsambandsins hádegisverðarboð í Hótel
Tryggvaskála fyrir fulltrúa úr öllum hrepp-
um sunnanlands og gesti. Að því loknu kl.
14.00 síðd. var ekið vestur yfir Ölfusá til
opnunar Landbúnaðarsýningarinnar. Þar
hafði þá safnazt saman fjöldi manns. Fólk
gekk nú inn á sýningarsvæðið og safnaðist
saman við suðurhlið hússins. Lúðrasveit
Selfoss lék. Hjalti Gestsson ráðunautur
flutti ávarp og bauð gesti velkomna. Þá
flutti forsætis- og landbúnaðarráðherra
Deild sandgrœðslu rikisins á sýningunni þótti haglega
sett upp.