Freyr - 01.10.1958, Side 26
Fóðrun kúnna í vetur
-------------—^
Fóðrun kúnna í vetur hlýtur að mótast af
ágætri nýtingu heyja á Suður- og Suðvest-
urlandi nú í sumar og slæmum heyjum á
Norður- og Norðausturlandi. Þá hlýtur mikil
verðhækkun á kjarnfóðri að hafa nokkur
áhrif á. notkun þess, sagði Bjarni Arason,
ráðunautur hjá Búnaðarféla i íslands, þegar
Freyr ræddi við hann um fóðrun kúnna í
vetur með tilliti til heyfengs í sumar og verð-
hækkunar á fóðurbæti.
Þar, sem hey eru venju fremur góð, á að
vera auðvelt að fóðra kýrnar til hárra af-
urða án mikillar notkunar á kjarnfóðri.
Hversu mikið á að nota af því, er fyrst og
fremst komið undir verðhlutfallinu milli
kjarnfóðurs og mjólkur. Á meðan 1 kg
kjarnfóðurs fæst fyrir 2 kg mjólkur heima
á búinu, orkar ekki tvímælis, að hagkvæmt
er fyrir bændur að nota það til viðbótar við
heyfóður til þess að nýta afurðagetu grip-
anna. Að nota kjarnfóður til heysparnaðar
kemur hins vegar ekki til greina við venju-
leg skilyrði.
Hvaða kjarnfóður á að nota?
Því miður er mjög lítið úrval af kjarnfóð-
urblöndum á markaðinum hér hjá okkur.
Hvert fyrirtæki hefur aðeins eina tegund af
fóðurblöndu á boðstólum, og þær eru yfir-
leitt líkar að efnasamsetningu Ef vel á að
vera, þarf hver bóndi að eiga kost á a. m. k.
tveimur tegundum af fóðurblöndu fyrir
mjólkurkýr með mismunandi innihaldi af
eggjahvítu. Það er hvort tveggja, að gripun-
um er óhollt að fá í fóðrinu verulegt magn
af eggjahvítu umfram þarfir, og F.E. í
eggjahvíturíku fóðri, síldar- og fiskmjöli, er
nokkru dýrari en í kolvetnafóðrinu. Þær
fóðurblöndur, sem framleiddar eru hér,
innihalda allar mjög mikið af eggjahvítu,
svo mikið að það er nægjanlegt, þar sem
þörfin verður mest, það er, handa hámjólka
kúm með lélegu heyfóðri. Séu þær notaðar
handa kúm í iágri nyt og með snemmsleg-
inni og vel verkaðri töðu, verður eggja-
hvítumagnið í fóðrinu óhóflega mikið og
fóðrið þar af leiðandi óhollara og dýrara
en ella.
Hvað geta bændur gert til þess að ráða
bót á þessu?
Þar sem taðan er snemmslegin og vel
verkuð, er vafalaust hagkvæmt að blanda
fóðurblöndurnar með ódýrara kornfóðri til
helminga eða svo. Bezt er að nota til þess
maís og hveitiklíð t. d. tvo hluta maís og
einn hluta hveitiklíð.
Þá má einnig benda á það, að verzlun með
fóðurvörur er að langmestum hluta í hönd-
um samvinnufélaga bænda, og ætti þeim því
að vera innan handar að ráða bót á því
sem aflaga fer á því sviði.
Hvað um fóðrun kúnna á óþurrkasvæð-
unum?
Þar sem hey eru hrakin, er sjálfsagt að
gefa öllum gripum ofurlítið af eggjahvítu
og steinefnaríku kjarnfóðri, t. d. y2—1 kg
af eggjahvíturíkri fóðurblöndu á dag á kú,
þótt þær séu í lágri nyt eða geldar, og auk
þess 30—40 g af steinefnablöndu og 1 mat-
skeið af lýsi á dag.
Steinefnablöndur.
Á markaðinum eru nokkrar tegundir af
steinefnablöndum fyrir mjólkurkýr mis-
munandi að efnasamsetningu. Hverja þeirra
er hagkvæmast að nota, fer eftir aðstæð-
um á hverjum stað, og er því ekki hægt
að gefa almennar leiðbeiningar um það.
Steinefnainnihald töðunnar er mjög mis-
munandi frá einni jörð til annarrar, og ræð-
ur þar mestu jarðvegur og áburðarnotkun.
Steinefnablanda, sem kemur að ágætum
notum á einu búi, getur því reynzt gagns-
laus eða jafnvel skaðleg á öðru. Óhætt er
þó að ráða öllum bændum, sem verða varir