Freyr - 01.10.1958, Side 31
FREYR
327
milli þess bezta og versta, þó verulega nær
því bezta. Svipað má segja um Vestur-
Skaftafellssýslu. Vélakostnaður allur og
fyrning í A.-Húnavatnssýslu í árslok 1956
er samkvæmt búnaðarskýrslunni, meðaltal
á bónda kr. 4.033.— í Vestur-Skaftafells-
sýslu kr. 4.368.—
Ég læt það nægja, sem komið er um verð-
lagsgrundvöllinn, ég veit að bændum er það
vel ljóst, að það er ekki auðvelt að finna
verðlagsgrundvöll, sem öllum hentar eða
líkar.
Ég ætla þá að fara nokkrum orðum um
búnaðarástandið í árslok 1956. Sauðfé er þá
talið 706.291, þar af eiga bændur 575.877
kindur. Nautgripir eru taldir 47.509, þar af
eiga bændur 45.397 nautgripi.
Heyfengur alls, taða 2.575.462 hb.
úthey 412.568 hb. alls 2.988.030 hb.
4- þar frá hey búleysingja 164.599 —
Hey bænda 2.823.431 hb.
það er 449 hb. á bónda.
Sauðfé búleysingja í sýslum og þorpum
er 114.838 kindur — sauðfé í kaupstöðum
16.376 kindur. Nautgripir annarra en bænda
431 og hross 5850.
Það mun láta nærri að kjötframleiðsla
kaupstaðabúa, þorpsbúa og búlausra í sveit-
um sé um 2000 tonn. Nú er gert ráð fyrir
að úr landi þurfi að selja um 300 tonn fyrir
um 8 kr. kílóið, (án útflutningsupp.).
Kaupstaðarbúnar og menn í þorpum og
kauptúnum, og það sumt hátekjumenn
leggja til bróðurpartinn af útflutnings-
kjötinu. Þetta er vert að athuga þegar deilur
rísa út af uppbótum á útflutt kjöt. Hitt er
ekki nema sjálfsagt og eðlilegt að búlausir
menn, sem vinna úti í sveitunum eigi kind-
ur.
í framhaldi af því, sem að ofan segir fer
hér á eftir kafli úr síðustu skýrslu fram-
leiðsluráðs, sem er um útflutning landbún-
aðarafurða Af kindakjötsframleiðslu s. 1.
haust (1957) hefur verið flutt út 2.423.192,5
kg. dilkakjöt, en rúmlega 272 lestir af full-
orðnu fé. Kjötið hefur verið flutt til Bret-
lands (1.695.090 kg), Svíþjóðar (417.623 kg),
Bandaríkjanna (392.753 kg), Danmerkur
(52.844), Noregs, Færeyja, Frakklands og
A,- og V.-Þýzkalands.
Eins og fyrri daginn hefur komið í ljós,
að verðið, sem fengist hefur fyrir kjötið, er
mjög misjafnt.
Söluverð dilkakjöts (fob.) til hinna ýmsu
landa er sem hér segir:
England......... kr. 7,51 pr. kg
Svíþjóð ..
Bandaríkin
Danmörk
Færeyjar
Frakkland
Noregur .
Meðaltal
7,51
10,43
9,08
11,24
12,73
9,43
11,61
8,14
Kjötið af fullorðnu fé seldist að meðal-
tali á kr. 4,70 pr. kg (frá 4,33 í 6,68).
Á árinu 1957 var flutt úr landi um 173
tonn af mjólkurosti, aðallega til V.-Þýzka-
lands. Að meðaltali mun söluverð hans hafa
verið um kr. 6.50 pr. kg: Það sem af er
þessu ári mun vera búið að flytja út tæp
200 tonn. Talsvert verðfall varð á osti á
heimsmarkaðnum s. 1. vor, en nú upp á síð-
kastið hefur verðið aftur hækkað nokkuð,
þó það sé tæplega komið svo hátt sem það
var um þetta leyti í fyrra. Þá hefur verið
flutt út til V.-Þýzklands smávægilegt magn
nýmjólkurdufts, en ætlunin er að flytja
þangað alls um 100 tonn á þessu ári, fyrir
verð, sem er svipað og ostverðið.
Eins og áður er á minnst eru greiddar
uppbætur á útfluttar landbúnaðarvörur,
sem sambærilegar eru við beztu kjör báta-
flotans. Fyrir verðlagsárið 1956/1957 var
endanleg útflutningsprósenta landbúnaðar-
afurða um 54,5% miðað við fob.-verð. Fyrir
tímabilið frá 1. sept. 1957 til 15. maí s.l. mun
hún verða um 65%, en eftir það til 1. sept.
rúm 80%.
Útflutningsuppbætur fyrir verðlagsárið
1956/1957 urðu nokkurn veginn jafn háar
fyrir sauðfjárafurðir eins og uppbótaþörfin
fyrir kjötið, um 33 milljónir króna, en á út-
fluttan ost ársins 1957 vantar um 900.000,00
krónur. Hvernig þessi reikningur kemur út
fyrir yfirstandandi verðlasár er óvíst ennþá,
því uppgjör er skammt á veg komið, en
sjálfsagt hafa hlutföllin ekki breytzt neitt
stórvægilega. Sverrir Gíslason.