Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1958, Page 32

Freyr - 01.10.1958, Page 32
328 FREYR ÞÓRÐUR JÚLÍUSSON: Viðhald búvéla Sumarið er sá annatími, sem bæn.'lur nota flestar vélar við störf sín. Jafnframt því fer nú í hönd sú árstíð, sem fæstar vélar eru í notkun. Sláttuvélin, rakstrarvélin, snúnings- vélin, heyvagnarnir og fleiri vélar standa nú úti og sumstaðar hafa þær verið skildar eftir þar, sem þær voru notaðar síðast, og bíða þess að þær séu hirtar og settar á þann stað, þar sem þær munu svo bíða næsta vors, eða við skulum vona að svo verði gert á flestum bæjum. Þetta gefur því tilefni til íhugunar um það hvernig vélarnar séu bezt geymdar yfir vetr- armánuðina. Oft hefur verið rætt og ritað um trassa- skap við geymslu búvéla og mörgum vegfar- andanum hefur runnið það til rifja að sjá vélar út um alla haga umhirðulausar. Hefur þá verið lögð áherzla á nauðsyn þess að hýsa vélarnar. Það skal þó tekið fram hér, að þótt hýsing vélanna komi í veg fyrir hið Ljárinn er tekinn úr greiðunni og hann og greiðan sið- an ryðvarin með t. d. vélafeiti. Litið er eftir þvi að skrufur og rær séu tryggilega festar. mjög svo æsta skap vegfarandans, þá er það ekki ætíð víst, að það eitt að hýsa vél- arnar sé nægileg trygging fyrir því að hag- kvæmlega sé um þær búið yfir veturinn. Gripahús eru óheppilegar vélageymslur. Sumir bændur hafa tekið það örþrifaráð, að geyma vélar sínar í gripahúsum, taka hjólin af rakstrarvélinni og þræla henni með miklu erfiði innst inn í eina fjárkróna og síðan hverri vélinni á fætur annarri meira og minna sundurtekinni. Þar liggja þær svo í krónni hjá fénu til vors, er þær eru grafnar upp úr taði og heyúrgangi. Þarna eru þær vel geymdar fyrir ásjá hnýsinna vegfarenda og ádeilublaðamanna, sem stundum hafa með sér myndavélar. En á vorin kemur í ljós, að sumir hlutirnir, sem skrúfaðir voru lausir, eru týndir, vél- arnar hafa ryðgað af hinu raka lofti, sem jafnan er í gripahúsum, og illa farnar af lífrænum efnum, sem slæm áhrif hafa á alla málma. Ennfremur hefur engin aðstaða verið til þess að dytta að vélunum þarna í fjárhúsinu. Þær eru því oft í slæmu ástandi þegar til þeirra á að taka á vorin. Ég held að menn ættu að forðast þessar geymslur, og af tvennu illu gæti ég trúað að útiveran væri betri. Geymsluhús með hlaði úti fyrir. Það má segj a, að æskilegt væri að til væri

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.