Freyr - 01.10.1958, Síða 35
F R E Y R
331
-----------------------------------------------------------------n
Smurolíur og feiti þarf að geyma með varúð
Gœtið þess vandlega að óhreinindi komist ekki i smurolíuna.
Það er mjög áríðandi að verja smurefnin fyrir utanaðkomandi efnum
(vatni, ryki o.þ.u.l.). Helzt á að geyma öll smurningarílát undir þaki og
láta olíuföt standa á stokkum, því það auðveldar stórum aftöppun á olí-
unni. Spons og kranar eiga ávallt að vera vel skrúfuð aftur; það kemur
í veg fyrir leka og hindrar rigningarvatn frá að komast í olíuna, sé ílátið
geymt úti. Setja ætti lekadollur undir krana á fötum. Mæliílát fyrir olíu
á að varðveita fyrir ryki og óhreinindum.
Feitiefnin fást oftast í dunkum. Gætið þess að láta lokin á þá þegar að
aflokinni áfyllingu á smursprautur og smurkoppa. Munið, að varkárni
í því sambandi er aldrei um of.
Smurefnin eru fullkomlega laus við óhreinindi, þegar þau koma frá
verksmiðjunni, en jafnvel hinn minnsti aðskotahlutur getur valdið mikl-
um truflunum, ef hann lendir í viðkvæmri legu.
v________________________________________________________________________________________>
Hjátrú um skeifur
Oft má sjá skeifu yfir dyrum á bæjum
og hesthúsum. Eru skeifurnar taldar vera
til heilla og hamingju. Þessa trú má rekja
aftur til fyrrihluta miðalda.
Margur trúir statt og stöðugt á heilla-
mátt skeifunnar og ef menn sjá skeifu á
förnum vegi, gera þeir sér gjarnan ómak
til þess að hirða hana.
Það er raunar erfitt að finna skýringu á
því hvers vegna þessi trú hefur festst við
skeifurnar, en vegir hjátrúarinnar eru oft
órannsakanlegir og ekki er það einkum
miður gefið fólk, sem er hjátrúarfullt. —
Leikarar, listamenn og rithöfundar meðal
annarra eru oft hjátrúafullir.
En einhver ástæða hlýtur að vera fyrir
því, að skeifur eru taldar heillagripir. Ein
líklegasta skýringin, sem menn hafa getið
sér til er sú, að lögun skeifunnar minni á
vaxandi tungl, en það hefur frá fornu fari
verið talið boða heill. í annan stað hefur
sú trú löngum leikið á, að járn og stál fældi
burt illar vættir. Áður fyrr var það trú í
ýmsum löndum, að járnsmiðir vissu lengra
en nef þeirra náði, og þar sem þeir smíð-
uðu skeifur, fengu þær sinn skammt af
trúnni. Um allan heim, að kalla má, og
einkum þó í Ameríku, er skeifan álitin
heillagripur. Ein undantekning er þó frá
þessu: f Bæheimi í Þýzkalandi er það álitið
boða ógæfu að hirða skeifu upp af götu
sinni.