Freyr - 01.10.1958, Page 37
FREÝR
333
Vikurveggur hefur ekki reynzt neitt betur en
veggur úr steinsteypu.
Hitinn í kartöflugeymslum má helzt ekki vera
yfir 4—5° C. og bezt geymast þær við 2—3° C.
Ef hitinn fer niður í 1° C. um lengri tíma, byrja
kartöflurnar að breyta sterkjunni í sykur og
verða sætar á bragðið. Takmark geymslunnar
þarf að vera að hafa hitann um 2° C., svo önd-
un og efnabreytingar yfir geymslutímann verði
sem minnstar. í kartöflugeymslunni þarf að
hafa hitamæli svo hægt sé að fylgjast með
hitabreytingum og stuðla að jöfnum hita með
hæfilegri loftræstingu. Ef hitinn fer niður í 0°
C. þarf að koma honum upp í 2—3° C. Er það
hægast með olíukyndingu. Vel geymdar kart-
öflur eiga ekki að léttast meir en 5% yfir vet-
urinn, og oft hafa þær ekki rýrnað svo mikið
í geymslunni á Sámsstöðum. Vel hraustar kart-
öflur er hægt að geyma án mikillar rýmunar,
ef þess er gætt að láta þær liggja í sem full-
komnustu dvalaástandi, en það er hægt í góðri,
svalri kartöflugeymslu. (Kartaflan)
Gafl og þverskuröur af kartöflugeymslu.
Smásöluverð í verzlunum í Reykjavík í okt. 1958
Landbúnaðarvörur: aur.
Nýmjólk ........................ ltr. 423
Rjómi ............................. — 3720
Skyr ............................. kg 845
Smjör ............................. — 5500
Heimasmjör ........................ — 4310
Mjólkurostur 45% .................. — 4570
Mysuostur ......................... — 1850
Nautakjöt (steik) ................. — 5500
Nautakjöt (súpukjöt) .............. — 2720
Kálfakjöt ....................... — 2562
Dilkakjöt nýtt .................... — 2950
— saltað .................. — 3035
— reykt ................... — 3985
Flesk reykt ....................... — 10000
Egg I. fl.......................... — 3750
Tólg .............................. — 1335
Kæfa .............................. — 6370
Kartöflur ......................... — 190
Aðrar neyzluvörur: aur.
Fiskur (nýr), slægð ýsa ............ kg 490
Fiskur (nýr), þorskur slægður .... — 380
Saltfsikur, þorskur, þurrkaður .... — 900
Rúgmjöl ............................. — 298
Flórmjöl ............................ — 349
Hafragrjón .......................... — 372
Hrísgrjón ........................... — 677
Hvítasykur, höggvinn ................ — 638
Strásykur ........................... — 459
Smjörlíki ........................... — 890
Krystalsápa ......................... — 1280
Kaffi, br. og malað ................. — 4300
Kaffibætir .......................... — 2100
Cacao ............................. pk. 1323
Steinolía ........................ Itr. 165
Kol ............................ 100 kg 7200
Vísitala framfærslukostn. var 217 stig.