Freyr - 01.10.1958, Page 42
338
FREYR
Reglugerð
um meðferð búfjár við rekstur og flutning með vögnum, skipum og flugvélum
1. gr. Við rekstur og flutning skal ávallt
sýna búfé fyllstu nærgætni, svo að því líði
eins vel og kostur er.
2. gr. Ef reka þarf hross um langan veg,
t. d. vegna sölu eða útflutnings, skal járna
þau áður en þau fara úr heimahögum, en
draga skal undan þeim áður en þau fara á
skipsf j öl.
Búfé, sem flytja á með skipi, skal njóta
hvíldar á útskipunarhöfn í einn sólarhring
að minnsta kosti áður en það er flutt á
skipsfjöl. Gildir einu, hvort gripirnir eru
reknir eða fluttir á vögnum til útskipunar-
hafnar, ef um verulega vegalengd er að
ræða.
3. gr. Búfé, sem flutt er með skipum,
skal geyma í rúmgóðum, traustum stíum,
básum eða kössum undir þiljum. Á tíma-
bilinu frá 15. júní til 30. september má þó
flytja búfé ofan þilja, en þess skal þá gætt,
að það sé varið gegn stormi og ágjöf með
traustum tjaldseglum.
Áður en skipstjóri tekur búfé til flutn-
ings skulu eigendur eða umráðamenn þess
láta af hendi ríflegt og gott fóður, er nægi
til allrar ferðarinnar að dómi viðkomandi
héraðsdýralæknis eða hreppstjóra. Skip-
stjóri skal sjá fyrir nægum vatnsbirgðum
Ef margir gripir eru fluttir samtímis, skal
velja gripi af svipaðri stærð og aldri sam-
an í stíu. Eigi skal hafa fleiri en 6 stórgripi
saman í stíu og eigi fleira sauðfé en 12.
Stíubotna og bása skal strá sandi, heyi
eða moði eða draga úr hálku á annan lík-
an hátt.
Grindur og milligerðir skulu gerðar úr
straustum, sléttum viði, án skarpra brúna
eða horna, sem meitt geta skepnurnar, og
svo þéttar, að eigi sé hætta á, að skepnur
festi fætur í þeim. Skipstjórar skulu gæta
þess að hafa nægan og vanan mannafla til
hirðingar og eftirlits meðan á flutningi
stendur.
4. gr. Þegar stórgripir eru fluttir með
bifreiðum, skal leitazt við að nota til þess
yfirbyggðar eða yfirtjaldaðar bifreiðar, sem
veiti gripunum skjól og birgi þeim útsýn,
en jafnframt skal þess gætt, að loftræst-
ing sé nægileg.
Nautgripi og tamin hross skal binda
tryggilega með múlbandi meðan á flutn-
ingi stendur. Til þess að draga úr hálku
skal ávallt strá flutningspall sandi, heyi
eða tréspónum. Meðan á flutningi stendur,
skal sérstakur gæzlumaður hafa eftirlit með
gripunum.
Ef um einstaka gripi er að ræða, má
flytja þá í traustum kössum eða básum.
Hliðar slíkra flutningsbása skulu sléttar og
þétt klæddar, hæð eigi minni en 1.20 m,
nema fyrir ungviði, enda séu hliðar þá
jafnan svo háar, að skepnan geti staðið
eðlilega án þess að ná upp fyrir þær. Með-
an á flutningi stendur skal skýla gripunum
með seglum og ábreiðum.
Þegar margir gripir eru fluttir í einu, má
flytja þá í stíum, og skal velja saman í stíu
gripi af svipaðri stærð og aldri.
Að vetrarlagi skal ávallt flytja gripi í
yfirbyggðum eða yfirtjölduðum bifreiðum.
Hrossum skal eigi ætla skemmri hvíld en
einn sólarhring að loknum flutningi með
bifreið eða skipi.
Hryssur og kýr, sem komnar eru að burði,
má ekki flytja með skipum eða bifreiðum.
5. gr. Sýna skal sauðfé fyllstu nærgætni
við smölun og rekstur, og forðast ber að
hundbeita það um nauðsyn fram.
Þegar sauðfé eða svín eru flutt með bif-
reiðum, skal ávallt hafa gæzlumann hjá
gripunum, jafnvel þó að um skamman
flutning sé að ræða.
Bifreiðar þær, sem ætlaðar eru til sauð-
fjárflutninga, skal útbúa sérstaklega til
þeirra nota. Pallgrindur skulu þéttar og
sléttar og eigi lægri en 90 cm. Flutnings-
pall skal hólfa sundur með traustum grind-