Freyr - 01.02.1994, Page 17
Ferðaþjónusta á hestum hérlendis
er starfsgrein, sem skilar mörgu
góðu. Má þar nefna aukin atvinnu-
tækifæri og tekjuöflunarmöguleika
víðs vegar um landið og þau kynni
við íslenska hestinn, sem mjög oft
leiða af sér aukna markaðsmögu-
leika.
Námskeið í hestamennsku á ís-
landi fyrir útlendinga eru einnig án
vafa til þess fallin að auka möguleika
á auknum mörkuðum fyrir íslenska
hesta.
Lokaorð.
Af því sem að framan segir má
vera ljóst að þrátt fyrir að staða
útflutningsmála hvað varðar fjölda
seldra hrossa hafi batnað til muna,
þá er ærið verk að vinna í því skyni
að efla stöðu hrossabúskapar í landi
okkar og auka verðmætasköpun. Ég
tel að framleiðendasamtök hrossa-
Stóðhestur af Stóðhestastöð ríkisins í Gunnarsholti. Gnýrfrá Hrepphólum. Ljósm.
E.J.
bœnda eigifyrst ogfremst að stjórna að vinna að kynningar- og markaðs-
þeim málum og menn á þeirra vegum öflunarstörf.
Verðlagning greiðslumarks
Frh. afbls. 77).
Gert er ráð fyrir að greiðslumarkið
sé einskis virði í lok samningstíma
núgildandi búvörusamnings. Með
því að greiða ekki meira en þetta og
að aðrar forsendur um gildistíma
búvörusamnings, afurðaverð og
þróun heildargreiðslumarks (það
haldist óbreytt) standist þá mun
þessi fjárfesting skila honum 14%
ávöxtun og 10 krónum í laun eftir
hvern lítra af keypta greiðslumark-
inu. Bóndinn á búi B getur hins
vegar aðeins greitt 64,53 krónur.
Ef bóndinn byggist við að verð til
framleiðenda færi lækkandi á næstu
árum hefði mátt gera ráð fyrir að
framlegðin færi lækkandi á tímabil-
inu. Eins má með hækkaðri ávöxt-
unarkröfu taka tillit til þess mögu-
leika að frekari samdráttur verði í
greiðslumarkinu, t.d. vegna inn-
flutnings á búvörum.
4.1 Verð á greiðslumarki -
dilkakjöt.
Á svipaðan hátt og áður má gera
áætlun um hvaða verð sé mögulegt
að greiða fyrir greiðslumark í dilka-
kjöti með núgildandi verðlagsgrund-
völl til hliðsjónar, sjá töflu 2.
Eins og fyrr er gengið út frá því að
heildargreiðslumark og afurðaverð
haldist óbreytt. Hér er því reiknað
út það verð sem búið getur greitt og
þannig að 14% vextir fáist af fjár-
festingunni. I núgildandi verðlags-
grundvelli mun launahluturinn
nema um 4000 kr. á ærgildi. Með
lækkaðri launakröfu hækkar það
verð sem búið getur staðið undir.
Pannig er gerð krafa um 2000 króna
laun á ærgildi á búi B og við það
hækkar sú upphæð sem búið getur
staðið undir að greiða fyrir greiðslu-
mark. Ekki er gert ráð fyrir viðbót-
arfjárfestingu og að kostnaður við
stækkun bústofns sé ekki meiri en
Kyn kálfafóstra ákveðið
Vísindalegum framförum í land-
búnaði virðast lítil takmörk sett. Hið
nýjasta í þeim efnum varðandi naut-
griparækt er, að nú er hægt að
ákveða kyn kálfafóstra fyrirfram.
Þetta var gert í fyrsta sinn fyrir
skemmstu í Cambridge í Bandaríkj-
unum á vegum fyrirtækisins Ma-
stercalf Ltd. í samvinnu við stofnun-
ina AFRC (Institute of animal
Physiology and Genetic Research)
tekjufærsla vegna bústofnsaukning-
ar.
Lokaorð.
Hér að framan hefur verið reynt
að velta upp þeim atriðum sem máli
skipta við ákvörðun á því verði sem
einstakir bændur geta boðið í
greiðslumark. Þó hér hafi verið sett
upp dæmi um slíkan útreikning er
rétt að undirstrika það, sem fyrra
dæmi raunar sýnir, að ekkert eitt
verð er til fyrir greiðslumark. Á
meðan markaðurinn er frjáls verða
það framboð og eftirspurn sem móta
verðið. Hver bóndi þarf að meta
hvaða verð hans eigin rekstur getur
staðið undir að greiða.
og bandaríska landbúnaðarráðu-
neytið. Kyn kálfafóstra er ákveðið
fyrirfram með því að flokka sæðis-
frumur fyrir sæðingu eftir því hvort
um er að ræða X eða Y litning í
frumunni. Talið er að tvö ár muni
líða þar til unnt verður að nýta þessa
tækninýjung í landbúnaði, en hún
mun að sjálfsögðu auðvelda stórlega
nautgriparækt, bæði á sviði kjöt- og
mjólkurframleiðslu.
WlOLflR
3*94 - FREYR 65