Freyr - 01.02.2001, Side 6
Ritfregn
Skógræktarritið 2000, 2. tbl.
Nokkru fyrir áramót kom
út 2. tbl. af Skógræktar-
ritinu fyrir árið 2000, en
útgefandi þess er Skóg-
ræktarfélag íslands. Aður hefur
komið fram r Frey að glæsilegra rit
en Skógræktarritið er vart að finna,
bæði að innihaldi og framsetningu.
Ritið birtir jafnt greinar sérfræð-
inga í skógrækt sem og greinar
áhugafólks.
Á liðnu ári, árið 2000, varð
Skógræktarfélag Islands 70 ára.
Þess er minnst í ritinu, bæði með
ræðu Magnúsar Jóhannssonar, for-
manns félagsins, á hátíðarsam-
komu þess á Þingvöllum hinn 27.
júní í tilefni af afmælinu, en einnig
er birt ræða Davíðs Oddssonar, for-
sætisráðherra, við sama tækifæri.
Brynjólfur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags Is-
lands, skrifar um Tré ársins 2000,
sem er hlynur við húsið Sólheima á
Brldudal. Nokkrar greinar eru um
skógrækt áhugafólk. Þar má nefna
grein eftir Vilhjálm Lúðvíksson,
„Skógrækt áhugamannsins II. Um
skógrækt í Brekkukoti o.fl.“. Viðtal
er við Karl Eiríksson, forstjóra, um
skógrækt hans í jaðri Mosfellsheið-
ar þar sem skilyrði til skógræktar
hafa ekki verið talin hagstæð en
árangur þó orðið furðu góður.
Flestar greinar í ritinu að þessu
sinni, eða fjórar, á Sigurður Blön-
dal fyrrv. skógræktarstjóri. Þær
fjalla um blæöspina á Hofi í Vatns-
dal, skógrækt á Gunnfríðarstöðum
á Bakásum í 40 ár, í þriðja lagi er
grein sem ber heitið „Öll sár gróa“
og fjallar um skemmdir af völdum
hreindýra í skógrækt á Fljótsdals-
héraði og í fjórða lagi grein er nefn-
ist „Fegursti þinurinn“ og fjallar
um teig af rauðþin í Hallormsstaða-
skógi.
Nefna má athyglisverða grein
eftir Björn Jónsson, fyrrv. skóla-
stjóra, „“Ræktun áhugamannsins -
skilar hún eðlilegum árangri?“ og
tvær greinar eftir Baldur Þorsteins-
son, skógfræðing, „Fræskrá 1933-
1992“ og „Hugað að uppruna" þar
sem hann hugar annars vegar að
uppruna skógarfuru í Mörkinni á
Hallormsstað og hins vegar að
Douglasgreni á Atlavíkurstekk.
Ymislegt efni í ritinu er enn ótal-
ið sem vert væri að gæta.
Skógræktarritið fæst í bókabúð-
um en einnig er unnt að gerast
áskrifandi að því hjá Skógræktarfé-
lagi Islands, sími 551 8150, eða
netfangi skogis.fel@simnet.is
ME
fjármálin í öruggum höndum
BUNAÐARBANKINN
Transtiir banki
HEIMILISLINA
2 - FR6VR 1/2001