Freyr - 01.02.2001, Qupperneq 24
3. mynd. Þvermál við rótarháls á birki við mismunandi tímasetningu áburðargjaf-
ar á Markarfijótsaurum. Ástæða þess að þvermái er sýnt í stað hæðar er sú að
mun meiri fylgni er milli þvermáls og lífmassa (ofan jarðar og neðan), en milli
hæðar og lífmassa og því gefur þvermál mun betri mynd af áburðarsvörun en
hæð.
nærðar plöntur vaxa lítið og er
frekar hætt við dauða af völdum
fyrrnefndra þátta. Sem dæmi má
nefna að lítið rótarkerfi veitir minni
festu þar sem holklaki og frostlyf-
ting eru vandamál.
Hvaðci áhrifhefur áburðargjöf við
gróðursetningu á vöxt?
Áburður hefur jákvæð áhrif á
vöxt, það sýna niðurstöður allra til-
rauna. Þau næringarefni sem gefa
mesta svörun eru köfnunarefni og
fosfór. Köfnunarefni eitt og sér gef-
ur litla svörun og fosfór nær enga,
en þegar þeim er rétt blandað sam-
an verða margfeldisáhrif á vöxt líf-
massa. Með lífmassa er átt við
heildarþunga þurrefnis í plöntunni,
þ.e. bæði í rótum og ofanjarðar-
hluta. í maí 1999 og ágúst 2000
voru birkiplöntur, sem fengið
höfðu mismunandi skammta af
köfnunarefni og fosfór, grafnar upp
í áburðartilraun á Markarfljótsaur-
um (MAR) og í Kollabæ í Fljóts-
hlíð (KOLL). Þegar jarðvegur
hafði verið skolaður af rótum voru
plönturnar þurrkaðar og vegnar. Á
2. mynd hefur lífmassavöxtur, þ.e.
þurrvigt róta, stofns, greina og
blaða verið umreiknaður yfir í
kg/ha. Miðað er við að 3000 plönt-
ur séu gróðursettar á ha.
Á 2. mynd sést greinilega að
plöntur sem engan áburð fá og
gróðursettar eru í rýra útjörð
staðna í vexti og binda því lítinn
lífmassa. Sé hins vegar gefinn stór
skammtur af auðleystum áburði (4
g af hreinu köfnunarefni með 15 g
af hreinu fosfati) við gróðursetn-
ingu, er lífmassi á hverjum ha
lands kominn yfir 100 kg eftir
aðeins þrjú vaxtarsumur. Meiri-
hluti lífmassans er bundinn í rótu-
m birkisins á Markarfljótsaurum,
en heldur stærri hluti er ofanjarðar
í Kollabæ. Þessi mikli vaxtarauki
og þar af leiðandi binding kolefnis
(koltvíildis) með réttum áburðar-
skammdi gæti skipt sköpum ef
koltvíildis kvótar fara ganga
kaupum og sölum, sbr. Kyoto bók-
unina.
Hvenœr er vœnlegast að bera á
plönturnar?
Samkvæmt niðurstöðum úr
áburðartilraunum frá 1998 eru
vaxtarviðbrögð mest þegar borið er
á við gróðursetningu að vori. Gildir
þetta sér í lagi fyrir birki. Greni
sýnir aftur á móti mun minni mun í
vexti en birki. Samkvæmt niður-
stöðum er betra að bera á vorið eftir
gróðursetningu heldur en að bera á
um mitt sumar (15. júlí) eða síð-
sumars (25. ágúst). Betra er þó að
bera á plöntur síðla sumars heldur
en að sleppa því alveg sbr. 3. mynd
(Hreinn Óskarsson 2000).
Birki (dökkt) & Greni (ljóst)
júní ágúst ágúst
4. mynd. Breytingará innihaldi köfnunarefnis með og án áburðar. Efri örin bendir
á hörgulmörk í birki og neðri örin á hörgulmörk í greni. Eftir aðeins tæpa þrjá
mánuði í rýrum móajarðvegi eru plönturnar farnar að líða af alvarlegum skorti á
köfnunarefni sé ekki er borið á, en hjá ábornum plöntum er næringarástandið í
lagi. Athygli skal vakin á að betur nærðar plöntur uxu betur og voru með stærri
blöð og lengri nálar.
20 - FR6VR 1/2001