Freyr - 01.02.2001, Page 42
ar til landsins sumarið 1896.
Ruddu þær sér fljótt til rúms. Erum
við þá komin til þess tíma er Sig-
urður Sigurðsson búfræðingur frá
Langholti í Flóa leggur af stað í
náms- og kynnisferð sína til Norð-
urlanda, í þeim tilgangi einkum að
kynna sér nýjar aðferðir við mjólk-
urmeðferð og -vinnslu.
Þáttur Sigurðar Sigurðssonar
ráðunautar
Sigurður Sigurðsson réðist sem
ráðunautur til Búnaðarfélags Suð-
uramtsins 1892 og starfaði hjá því
næstu sumur. Fór hann víða. Arið
1897 skárust leiðir hans og Agústs
í Birtingaholti sem fyrr var nefnd-
ur. Agúst færði smjörsölu Dana til
Englands í tal við Sigurð. Sigurður
taldi þörf á að gera tilraun í þessu
efni og bar erindið upp við stjóm
Búnaðarfélags Suðuramtsins. Ekki
voru allir trúaðir á tilraunina; töldu
að fyrri tilraunir til umbóta í mjólk-
urvinnslu gæfu ekki tilefni til bjart-
sýni. Það varð þó úr að Búnaðarfé-
lagið veitti Sigurði nokkurn fjár-
styrk og utan hélt hann til náms- og
kynnisdvalar haustið 1897. Næsta
vetur dvaldist hann á Jótlandi en
síðara árið í Noregi.
Sigurður kynnti sér mjólkuriðn-
aðinn sérstaklega. Heim kominn
ritaði hann rækilega fræðslu- og
hvatningargrein um þau mál í Bún-
aðarrit. í niðurlagi hennar segir
m.a.:
„...Astand lcindbúnciðcirins er
þannig nú, að það verður cið gjörci
eitthvað til þess að hjálpa því við,
og það er sannfæring mín, að
mjólkurbúin sjeu eitt af því, og eitt
það fyrsta og helzta, er geti bjarg-
að honum og hafið hann upp...
Verði það eigi gjört, hafa menn þar
með kveðið upp dauðadóm yfir
landbúnaðinum á Islandi og ís-
lenzku þjóðerni... “
í greininni kynnti Sigurður hug-
myndir sínar um eflingu mjólkur-
iðnaðar á Islandi. Mikilvægt atriði
þeirra var það að samhliða stofnun
mjólkurbúanna „...efekki á undan “
yrði að koma „verkleg kennslu-
Sigurður Sigurðsson ráðunautur frá
Langholti í Flóa var helsti forvígismað-
ur íslensku rjómabúanna.
stofnun í meðferð mjólkur, smjör-
ogostagerð". Benti Sigurður á að
kennslustofnun þessi gæti verið í
sambandi við einhvern búnaðar-
skólann, ellegar þá sem sérstakur
skóli. „77/ cið byrja með “, skrifaði
Sigurður, „hygg jeg bezt cið komið
vœri d fót kennslu í þessari grein
við búnaðarskólann cí Hvanneyri,
og cið fenginn sje maður, lielzt frá
Jótlandi, sem vel er að sjer í öllu
verklegu, sem lýtur að smjör og
Hans Grönfeldt Jepsen mjólkurfræði-
kennari og skólastjóri, frá 0lgod á Jót-
landi. Hjedding-mjólkurbúið var í
næsta þorpi svo segja má að Grön-
feldt hafi átt rætur sínar við Mekku
dönsku mjólkurvinnslunnar.
ostagerð, til þess cið annast kennsl-
una “.
Grein Sigurðar vakti athygli.
Agúst í Birtingaholti las m.a. úr
henni á fundi í Hruna veturinn
1899-1900 og hvatti mjög til þess
að reynt yrði að „gera smjör okkar
cið útflutningshæfri vöru í stað
sauðanna. “ Fáir reyndust þó til-
búnir til þátttöku. Engu að síður
tókst Agústi í félagi við fáeina ná-
granna að koma mjólkurbúi á fót
sumarið 1900. Stóð það að Syðra-
Seli í Hrunamannahreppi. Smjörið
var selt til Englands. Hvert pund
þess skilaði 63 aurum að frádregn-
um öllum kostnaði. Tilraunin tókst
„...furðuvel og óx mönnum nú liug-
ur cið reyna betur, “ skrifaði Agúst.
Búið í Syðra-Seli varð fyrsta
mjólkurbú landsins.
Og lleiri reyndu fyrir sér þetta
fyrsta sumar aldarinnar. Frá
Hvanneyrarskóla og tveimur öðr-
um heimilum í Borgarfirði var sent
dálítið af smjöri í reynsluskyni til
Englands. A markaðinum ytra
reyndist vera helmingsmunur á
verðinu sem þar fékkst fyrir smjör-
ið, Hvanneyrarsmjörinu í vil.
Skriða var að fara af stað. Ymislegt
varð til þess að losa um steinana og
víkur nú sögunni aftur til sumars-
ins 1899.
Næstsíðasta sumar aldarinnar
gekk í garð. Reyndist erfitt. Var þó
ekki á bætandi um árferði til lands-
ins. Heyskapur gekk seint í flestum
sveitum sakir votviðra. Þingmenn
riðu til Alþingis.
... og Alþingi hreyfði við
mjólkurmálinu 1899
Hræringar í samfélaginu leita
gjarnan inn á löggjafarsamkund-
una. Þannig fór líka sumarið 1899.
Sunnan af Álftanesi reið þingmað-
ur Dalamanna, séra Jens Pálsson
prestur í Görðum. Á Alþingi lagði
hann fram frumvarp til laga um
verðlaun fyrir sölu á útfluttu ís-
lensku smjöri. Þingið kaus nefnd
til þess að íhuga frumvarpið. I
nefndinni áttu sæti, auk flutnings-
manns, þeir Pétur Jónsson á Gaut-
38 - FR€VR 1/2001