Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1946, Blaðsíða 143
ÞINGTÍÐINDI
121
svo sem endurskoðuð útgáfa af þýðinga-
safninu Icelandic Lyrics.
Hitt þarf eg vart að taka fram, að eg
er jafn fasttrúðaður og eg hefi altaf
verið á nauðsyn og gildi þjóðræknis-
starfsemi vorrar í landi hér og reiðubú-
inn að leggja félagi voru og málum þess
lið í rasðu og riti, eða með öðrum hætti
eftir því, sem ástæður mínar leyfa.
Með tilliti til ofangreindrar ákvörð-
knar minnar, vil eg þá þakka innilega
öllum þeim, sem átt hafa sæti í stjórn-
arnefndinni í forsetatíð minni, fyrir á-
gæta og ánægjulega samvinnu, enn-
fremur ritstjóra tímarits félagsins, for-
setum og öðrum embættismönnum
deilda þess og sambandsdeilda, ritstjór-
um vestur-íslensku vikublaðanna, sendi-
herra Islands í Washington, aðalræðis-
bianni þess I New York, ræðismönnum
Þess í Chicago og Winnipeg og stjórn-
arnefnd Þjóðræknisfélagsins á Islandi.
öllum þessum aðilum á félagið og eg
sem forseti þess undanfarin sex ár mikla
s^uld að gjalda. Það á einnig sérstak-
lega við um forseta íslands, herra Svein
Björnsson, heiðursverndara félags vors,
°g ríkisstjórn Islands á umræddu tíma-
þfli, sem sýnt hafa oss frábæra góðvild
°g mikinn sóma svo sem fulltrúa á
eldarfjórðungs-afmæli félags vors og
^jóða fulltrúa af vorri hálfu á lýðveld-
'shátíðina. Loks þakka eg félagsfólki
v°ru í heild sinni hjartanlega fyrir alla
filtrúna, sem það hefir sýnt mér og hin
^ergu uppörvunarorð í bréfum og sam-
felum, sem verið hafa mér byr undir
vmngi í starfinu og óræk sönnun þess,
þye málstaður vor á viðtækar og djúp-
ar raetur í hugum fólks vors.
, Þó sjálfsagt sé að horfast hreinskiln-
lngslega í augu við þá erfiðleika, sem
vér eigum við að striða í félagsmálum
v°rum, og þar er um margt á brattan að
Sa^kja, fæ eg eigi annað séð, er eg lít
'ílr starfið undanfarin ár og horfi fram
a við, en að þessi starfsemi geti enn átt
ar>gt lif fyrir höndum, ef að henni er
nr>nið af einlægni, áhuga, samhuga og
'ornfýsi. Það eru hinir traustu hornstein-
ar allrar farsællegrar og varalegrar fé-
lagsstarfsemi.
^inn mikilhæfi og spakvitri forseti
Bandaríkjanna, Franklin D. Roosevelt,
komst svo að orði í einni af hinum frægu
hvatningarræðum sínum til þjóðar sinn-
ar á stríðsárunum, að það eina, sem
menn þyrftu að hræðast væri óttinn
sjálfur. Það er sarna hugsjónin og fram
kemur í kvæði hins snjalla skálds vors
Hannesar Hafstein ,sem einnig var bjart-
sýnn og brattsækinn leiðtogi þjóðar
sinnar.
Öllum hafís verri er hjartans ís,
sem heltekur skyldunnar þor.
Ef grípur hann þjóð, þá er glötunin vís
þá gagnar ei sól né vor.
Vörumst að láta þann klaka spenna
helgreipar sínar um hjartarætur vorar,
draga oss kjark úr brjósti og orku úi
taugum. “Trúin flytur fjöll”, stendur
skrifað. Trúin á málstaðinn flytur hann
fram til sigurs, því að hún heldur vak-
andi eldi áhugans. 1 þeirri trú kveð eg
yður til starfa á þessu 27. þingi Þjóð-
ræknisfélags Islendinga í Vesturheimi
og bið um líftrú og eldmóð oss til handa
í kröftugum og tímabærum orðum
skáldsins, sem eg vitnaði til áðan:
Þrengdu þér gegnum lands og
þjóðar lund,
lífga hið veika, efl og bæt hið
sterka,
lát alt sem dáðlaust sefur bregða
blund,
til bjarta, góðra, drengilegra verka.
Eftir að forseti hafði lokið máli sinu
gerði Ásmundur P. Jóhannson það að til-
lögu: að skýrslu forseta sé veitt móttaka
eins og lesin. Tillöguna studdi Miss
Sigurrós Vídal og var tillagan samþykt.
Var þá vikið að þingstörfum. Skrifari
lagði til og séra Valdimar J. Eylands
studdi: “að forseti skipi þriggja manna
kjörbréfanefnd. Till. samþykt og þessir
skipaðir í nefndina: Jón Ásgeirsson, Mrs.
B. E. Johnson og Elías Elíasson.
Þá bar séra V. J. Eylands þá tillögu
frarn, að forseti skipi þriggja manna
dagskrárnefnd. Till. studd af Th. Gísla-
son og samþykt. Þessir skipaðir í nefnd-