Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1946, Blaðsíða 151
ÞINGTÍÐINDI
129
hvatningarræðu er okkur mun seint úr
minni líða.
Vegna þeirra anna sem fiskiveiðum á
Wiinnipeg vatni eru samfara á þessum
tíma árs, gat deildin ekki komið því við
að sendi erindreka á þing; en jafnframt
því flytja deildarmeðlimir og fram-
kvæmdarstjórn þjóðræknisþinginu hug-
heilar árnaðaróskir um blessunarrík og
giftuvænleg störf.
—Hecla, Man., 20. febrúar 1946.
í umboði þjóðræknisdeildarinnar
“Skjaldborg”,
Mrs. H. W. Sigurgeirson, forseti
Ingibjörg Pálsson, ritari
Guðm. Eyford gerði þá tillögu, að
skýrslan sé viðtekin. Einar Magnússon
studdi. Samþykt.
Skýrsla deildarinnar “Frón” í Winni-
peg lesin af forseta deildarinnar, Guð-
mann Levy.
Skýrsla deildarinnar “Frón",
Winnipeg, Man.
Deildin “Frón” hefir verið vel starf-
andi á árinu, þrátt fyrir ýmsa örðug-
leika, sem hún hefir átt við að striða.
Nýir skápar hafa verið smíðaðir fyrir
bókasafn deildarinnar. Greiddi Þjóð-
rmknisfélagið fyrir efnið, sem til þess
Þurfti, og einnig nokkuð af vinnunni.
Auk þess lögðu þeir Guðmann Levy, Jón-
hjörn Gíslason og Davíð Björnsson, all-
uiikla vinnu fram, við breyting skáp-
anna, án endurgjalds.
Nefndin reyndi mikið til þess, að fá
bókavörð, sem gæti sint útlánum bóka
safnsins, tvisvar i viku, og líta eftir
safninu að öðru leyti. Enginn fékst til
að taka að sér það starf. Enda ekki unt,
að greiða bókaverði starf hans, sem er
meira en margur hyggur, ef það er vel af
hendi leyst. Til bráðabirgða hefir nefnd-
m fengið mann til að sinna útláni bóka
einu sinni í viku, og gerir sá það endur-
Sjaldslaust.
Nauðsynlegt er, að safnið geti verið
°Pið til útláns, tvisvar í viku. Mun
nefndin hafa það í huga, hvenær sem
hún getur fengið bókavörð, sem fær er
a® taka að sér bókavarðar stöðuna og
sinna því starfi eins og kröfur heimta.
Nefndin hefir látið binda og gera við
140 bækur, og varið til þess, $84.00.
Nýjar bækur hafa verið keyptar fyrir
$158.00 á árinu. Samtals hefir nefndin
því varið til viðhalds bókum og bóka-
kaupum, $242.00 á árinu.
Aðsókn hefir ekki verið eins almenn,
sem undanfarin ár, er stafar af því, að
safnið er ekki opið nema einu sinni í
viku. Fólk er líka meir önnum kafið á
þessum tímum, en nokkru sinni fyr, svo
færri tó'mstundir eru til lesturs.
Yfirleitt eru bækur safnsins í góðu
lagi. Árlega þarf þó að leggja talsvert
af peningum fram til viðhalds bókunum,
svo þær gangi ekki um of úr sér, og verði
ófærar til útláns.
“Frónsmótið” var haldið í lútersku
kirkjunni síðast liðinn vetur, við ágæta
aðsókn. Enda voru þá tveir góðir gestir
frá islandi, gestir nefndarinnar, sem
heilluðu til sín fólkið, þeir dr. Helgi P.
Briem, aðalræðismaður Islands í New
York, og Árni G. Eylands, forseti Þjóð-
ræknisfélagsins í Reykjavík. Frónsmót-
ið fór hið besta fram, og var einróma
eitt af þeim bestu.
Skemtifund hafði deildin “Frón”, þar
sem tveir gestir frá islandi voru á
skemtiskrá, þeir Guðmundur Daníelsson
skáld, og Guðmundur Hjálmarsson. Las
Guðmundur þar mörg kvæði eftir sjálfan
sig, prýðilega góð og vel flutt. En Guð-
mundur Hjálmarsson flutti þar aðal
ræðuna, um menning, framþrá og starfs-
svið yngri kynslóðarinnar á islandi.
Hlýleg, vönduð og vel flutt ræða, sem
fagnað var mjög vel. Ágóði af þessari
samkomu, er nam $100.00, gekk til
styrktar listakonunni, Miss Agnes Sig-
urðson, sem nú stundar hljómlistarnám
í New York.
Ennfremur hafði deildin skemti- og
fræðslufund í samfélagi við Þjóðrækn
isfélagið, í tilefni af aldarminningu
skáldsins, Jónasar Hallgrímssonar, síð-
ast liðið sumar. Próf. Richard Beck
flutti þar vandað og skörulegt erindi,
sem allir rómuðu vel. Margt fleira var
þar til fróðleiks og skemtunar. Báðir
þessir fræðslu- og skemtifundir voru
fjölmennir vel, og ánægjulegir að allra