Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1953, Page 44

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1953, Page 44
26 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA hinn norræna arf hvorum megin At- lantsála, sem vér búum. En það er ekki öllum gefið að mála svo skýrar myndir og fagrar sem skáldin gera. En vér hljótum að njóta samfylgdar þeirra, þótt fljótt sé yfir sögu farið. Þótt sagan eigi sín- ar skuggahliðar, á hún einnig sína sólskinsbletti, sem yndi er á að horfa, — einnig saga þjóðar vorrar. Það er að vísu ekki að jafnaði, að vér, hinir hversdagslegu menn, sjá- um sýnir, en stundum er skáldunum unt að bregða þeim skygnihjálmi yfir oss, að Huldu-hvammar og hólar opnast og sagan blasir við. Verða þá vegamótin stundum slík og minn- ingarnar, að vér sjáum yfir farinn veg — fáum litið yfir land og sögu. í eina slíka smáferð langar mig nú til að fara með yður á þessari stundu, og vér horfum til baka, til hinna erfiðu ára, er yfir ísland gengu á síðasta fjórðungi liðinnar aldar. Ég sé fyrir mér í anda á þessari stundu hópa landa minna, mismun- andi stóra, — börn og fullorðna cg lotin gamalmenni. Þetta er fátækt fólk, en stefnufast og sterkt í raun. Það virðist eiga fárra kosta völ. En það er eitt, sem því er öllu sameigin- legt: Það veit hvað það vill. Það vill vinna. Vinna og verða frjálst og efnalega sjálfstætt. Það er fólk í hamingjuleit. Fólk, sem hefur brotið brýrnar að baki sér og horfir fram; horfir til óþekktrar framtíðar í óþekktu landi. Ég sé fylkingarnar dreifast. Það er unnið hörðum hönd- um, því að nú er aðeins um tvær leiðir að velja. — Þær leiðir, sem íslendingurinn hefur jafnan nefnt svo: að duga eða drepast. Og það er auðséð, að allur fjöldinn hugsar sér hinn fyrri kostinn. Og hann verður langur vinnudagurinn, eins og hjá frumfeðrunum heima, þar sem þeir leggja nótt við dag. En hvað gerir það til, þótt setjist gigt í lend og sigg í lófa? Það er verið að nema land og búa niðjunum lífvænlegri kjör en þeir áttu við að búa heima á Fróni. Og árin líða. Elzta kynslóðm hverfur í háttinn og hin næsta tekur við. Dagsins önn er söm, því að lífið heldur áfram og lífið gefur aldrei grið. Að nema staðar, væri að týnast eða deyja. Nei, landneminn íslenzki á sléttum Canada og öðrum frum- byggðum Vesturheims þekkti hlut- verk sitt og reyndist því jafnan trúr. í þrjá aldarfjórðunga hefur ís- lenzk hönd erjað hérlenda jörð og haslað sér baráttuvöll á flestum sviðum hérlends þjóðlífs. Sú barátta hefur stundum verið ströng, en hún er fögur og næsta lærdómsrík. Þriðja kynslóðin frá elztu land- nemunum, sem nú er sem óðast að taka við og víða að komast í fylk- ingarbrjóst, á að vonum nokkuð örðugt með að skilja þá sögu, er að baki liggur, skilja hlutverk og bar- áttu afa síns og ömmu. Utan bæjardyranna er al-enskur heimur, og hefur svo verið frá þvi fyrsta íslendingar settust hér að, en hann hefur verið að smáfærast inn fyrir þröskuld heimilanna og legg]a þau undir sig, og er það sízt vonum fyrri, þótt svo sé nú komið sem komið er. Að baki liggur mikil og merk saga — baráttusaga yðar fyrir varðveizlu móðurtungu yðar og ser- menningar. Já, ég sé hana fyrir mér í anda, vinir mínir, baráttusögu feðra yðar og mæðra hér í landi, og ég dáist ao þeirri sögu, því að hún er vörðuð af-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.