Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Qupperneq 52
50 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
9.4 Vinnueftirlit ríkisins
Skipta má starfsemi Vinnueftirlits ríkisins í grófum dráttum í tvennt, annars vegar í eftirlit á
vegum umdæma stofnunarinnar sem eru 8 talsins og hins vegar í stefnumótun og sérfræðistörf
á aðalskrifstofunni í Reykjavík.
Eftirlitsstarfið var að mestu leyti óbreytt að umfangi á árinu, en þó varð nokkur aukning,
einkum í vinnuvélaskoðunum. Nokkuð hefur dregið úr þvingunaraðgerðum og er það von-
andi til merkis um að alvarlegum brotum á lögum og reglum fari fækkandi.
í aðalstöðvunum var eitt aðalviðfangsefni ársins að undirbúa gildistöku nýrra reglna sem
fylgja skuldbindingum Islands samkvæmt samningum um hið Evrópska efnahagssvæði. Alls
þarf að taka upp rúmlega 40 tilskipanir ESB sem eru á verksviði Vinnueftirlitsins hér á landi,
ýmist með því að endurskoða eldri reglur eða gefa út nýjar.
Á árinu I994 létust 6 einstaklingar í vinnuslysum sem komu til rannsóknar lijá
Vinnueftirlitinu á móti 4 árið á undan. Slys í umferð og til sjós eru ekki talin með þar sem þau
koma ekki til kasta Vinnueftirlitsins. Þetta er uggvænleg tala og reyndar bendir ýmislegt til
þess að að tíðni dauðaslysa við vinnu hafi farið vaxandi á ný undanfarin ár eftir verulega
lækkun á undanförnum áratugum. Á sama tíma eru engar vísbendingar um aukningu á heild-
artíðni vinnuslysa. Hugsanlegt er að umrót og breytingar sem orðið hafa á vinnumarkaði á
undanförnum árum, t.d. í verktakastarfsemi, eigi hér einhvern hlut að máli. Það er eitt af
meginviðfangsefnum Vinnueftirlitsins að snúa þessari þróun við.
Stefnumótun og langtímaáætlun: Vinnueftirlitið starfar samkvæmt stefnumótun og starfs-
áætlun til fjögurra ára sem samþykkt var árið 1993. Þar kemur meðal annars fram að á næstu
fjórum árum muni Vinnueftirlitið m.a. leggja megin áherslu á gæðaátak, skipulag, verkefna-
stjórnun, gagnagrunn um vinnuslys og atvinnusjúkdóma, innra starf í fyrirtækjum, fyrirbyggj-
andi heilsuvernd, líkamsbeitingu við vinnu, efnanotkun á vinnustöðum og öryggi véla og
tækja.
9.5 Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
Afmælisráðstefna Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins, Rf, var haldin árið 1994 í tilefni þess
að 60 ár voru liðin frá því að Rannsóknastofa Fiskifélags Islands var sett á stofn. Á ráðstefn-
unni kom glöggt fram hve gífurleg þróun hefur orðið í fiskiðnaði íslendinga á síðustu
áratugum. Vinnsluvirði afurða hefur vaxið m.a. vegna bættrar nýtingar og sérvinnslu. Nýting
á óhefðbundnu sjávarfangi eykst. Þrátt fyrir þetta hefur samanlögðum fjölda starfsfólks í
útgerð og fiskvinnslu fækkað um nær 10% á síðasta áratug. Tækniþróun í vinnslunni er slík
að menn verða að hafa sig alla við að fylgjast með þeim möguleikum sem bjóðast. Það sem
skiptir þó mestu í þessari þróun er vaxandi fjöldi vel menntaðra starfsmanna sem hasla sér völl
í fiskiðnaðinum.
Þótt öllum séu ljósar takmarkanir á fiskistofnunum þá kemur æ betur í ljós að með
vöruþróun og skipulögðu markaðsstarfi er unnt að vinna mun meiri verðmæti úr sjávarfangi
en nú er gert. Það er sama hvar borið er niður í íslenskum sjávarútvegi, menn eru fullir af
hugmyndum um nýjungar og hagræðingu í framleiðslunni. Skilningur manna er að aukast á
mikilvægi þróunarstarfsins.
Sú breyting hefur einkum orðið á þjónustu Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins að meira
hefur orðið um sérhæfðar mælingar hvað varðar mengunarefni, en ljóst er að kröfur erlendra
kaupenda vaxa stöðugt. Stærsti þáttur í starfsemi stofnunarinnar eru rannsóknir. Hér verður
lítillega sagt frá þeim.
Umhverfisrannsóknir: Á árinu 1994 lauk vinnu við umfangsmikið vöktunarverkefni á meng-
unarefnum í sjó. Gerðar voru rannsóknir er lutu að aðskotaefnum í sjávarfangi.