Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Page 130
128 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
Það sem gerir Cantat 3 kerfið sérstakt og kannski flókið er hve margar greinar eru á kerfinu.
Strengkerfi sem liggur frá einum stað til annars er mun einfaldara í uppbyggingu en kerfi eins
og Cantat 3, sem greinist í margar í greinar. Meiri kröfur verður að gera til hönnunar
aflfæðibúnaðarins fyrir bragðið. Vanalega er Cantat 3 aflfæddur frá Kanada til Þýskalands,
þannig að stöðin í Pennant Point sendir út stöðugan straum 1,6 A, en stöðin í Westerland
sendir út stöðuga spennu með öfugri pólun.
Aðrar stöðvar straumfæða út í næstu greiningu. Hægt er að breyta aflfæðingunni. Þetta er
gert ef þarf að gera við hluta strengsins. Til dæmis þegar gert var við bilun í Fl þá var straum-
fætt milli Vestmannaeyja og Westerland.
Cantat 3 er mun fullkomnari en önnur sæstrengskerfi sem hafa verið byggð á undanförnum
árum, bæði hvað varðar afkastagetu og fjölrásunartækni eins og kemur fram á meðfylgjandi
töflu.
Heiti Fjöldi Ijóspara i notkun Bitahraði Mbitar/sek Fjölrásunar- tækni Fjöldi talrása Tilbúin til notkunar
TAT - 8 2 280 PDH 7560 1988
PTAT 3 420 PDH 17010 1989
TAT - 9 2 560 PDH 15120 1992
TAT - 10 2 560 PDH 15120 1992
TAT - 11 2 560 PDH 15120 1993
Cantat 3 2 2500 SDH 60480 1994
TAT-12/13 2 2500 SDH 60480 1996/97
SDH sem notuð er við Cantat 3 hefur marga kosti fram yfir hina eldri PDH tækni meðal
annars er hægt að taka einn 2 Mbitastraum út úr einum 155 Mbitastraum án þess að skipta
honum niður í fleiri þrepum eins og í PDH tækninni. Þetta gerir það að verkum að kerfin verða
ódýrari og væntanlega minni líkur á bilunum.
Cantat 3 er byggt upp sem 2+1 kerfi þ.e. tvær flutningsleiðir og ein til vara. Þetta gerist
þannig að ef einn endurvaki af sex (einn fyrir hvern ljósleiðara) bilar, þá er hægt að tengja
framhjá honum. (sjá mynd 2). Stjórntölvur í öllum landstöðvum vaka yfir gæðum endur-
vakanna og ef vart verður við bilun þá er tengt framhjá biluninni sjálfvirkt. Þar sem við eina
bilun einungis er notaður hluti af varasambandinu þolir kerfið margar slíkar bilanir án þess að
senda þurfi skip á staðinn. Tölvukerfið fylgist einnig með „heilsu“ endurvakanna og mælir
stöðugt: villufjölda, villuhlutfall, styrk á mótteknu merki, forspennu á útgangsljósgjafa.
Eins og komið hefur fram endar Cantat 3 hvað ísland varðar í Vestmannaeyjum, til þess að
tryggja að öruggt samband við útlandasímstöðina í Reykjavík er stöðin í Vestmannaeyjum
tengd með tveim óháðum leiðum.
Búið er að taka í notkun unt 20 2Mbitastauma sem er minna en 1/6 af flutningsgetunni.
Miðað við aukningu á símaumferð undanfarinnar sem er um 10% má gera ráð fyrir að
fyrrnefnd flutningsgeta nægi okkur um ókomin ár. Hins vegar er mjög líklegt að gagna-
sendingar muni aukast mikið, þrátt fyrir það eru möguleikar Pósts og síma að mæta þeirri þörf
góðir.