Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1996, Page 169
Stefnumótun 167
• Starfsmannastefna nær til allra starfsmanna fyrirtækisins.
• Starfsmannastjórnun er hluti af heildarstjómun fyrirtækisins á sama hátt og framkvæmdir, fjármál og
viðhald en takmarkast við mannafla þess.
• Starfsmannastjórnunin þjónar öllu fyrirtækinu.
• Starfsmannastjórnun miðar að því að starfsmannahald fari saman við þarfir fyrirtækisins og
samkvæmt gerðum samningum. Þannig á að leitast við að starfsmenn séu hæfilega margir og að
þeir nýtist fyrirtækinu sem best.
• Öll starfsmannamál fara i gegnum einn farveg þ.e. starfsmannastjóra.
• Þaö skal vera til skipurit sem skýrir stjórn, samskipti og ábyrgö einstaklinga innan einstakra deilda
og fyrirtækisins í heild.
• Leitast skal við að ráða hæft fólk til allra starfa og vanda til ráðningar svo sem kostur er.
• Langtíma og skammtíma stöðuáætlun á að vera til unnin í samráði við yfirmenn deilda.
• Starf sem losnar og á að endurráða i skal endurskoðast og breyta eftir kröfum tímans.
• Starfsmenn skulu fá starfslýsingu sem inniheldur helstu atriði þess starfs sem þeir taka að sér.
• Ráðningar skulu vera í nánu samráði við yfirmenn viðkomandi deildar.
• Umsækjandi skal fá upplýsingar um starfssvið og starfsaöstöðu og laun og hlunnindi sem fylgja því
að vinna hjá H.R.
• Taka skal á móti nýjum starfsmönnum skv. ákveðinni áætlun og afhenda þeim starfsmannahandbók
sem kynnir sögu og starfsemi Hitaveitunnar og kveður á um réttindi og skyldur starfamanns.
• Við ráðningu á yfirmönnum skal taka tillit til faglegra- og stjórnunarhæfileika.
• Að loknum reynslutíma starfsmanns skal farið yfir hvort ráðning var raunhæf og ákveða hvort
ráðningu skal fram haldið.
• Fylgjast á með árangri starfsmanna og þróun þeirra í starfi og veita aðstoð þar sem þess er þörf.
Þetta verði gert með því að fara yfir stöðu starfsmanna t.d. einu sinni á ári með yfirmönnum þeirra.
• Reynt skal að halda hæfu starfsfólki með því að bjóða því uþp á góða vinnuaöastöðu, eftirmenntun
og samkeppnishæf laun eftir því sem fyrirtækið hefur möguleika á.
• Athuga ber persónumatskerfi sem gefur starfsmönnum möguleika á launum í samræmi við árangur.
• Tryggja á góða vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk með því að nýta það pláss sem er til umráöa á sem
bestan hátt.
• Gefa á starfsfólki möguleika á nýjum verkefnum innan fyrirtækisins eftir því sem mögulegt er. Þetta
verði gert með hópstarfi og samvinnu yfir- og undirmanna.
• Þroska á starfsmenn faglega og persónulega með eftirmenntun. Eftirmenntun á að vera skipuleg og
samkvæmt áætlunum. Styðja ber frumkvæði einstaklinga að einstökum námskeiðum.
’ Stefna skal að því að góöur félagsandi ríki meðal starfsmanna m.a. með þvi að styrkja starfs-
mannafélagið.
’ Stuöla skal með markvissum aðferöum aö góðri samvinnu milli starfsfólks á öllum stjórnunarþrepum
fyrirtækisins. Þetta verði gert með hópstarfi og róteringu starfa þar sem það á við.
• Stuðla skal að þvi að starfsmenn geti mótað starf sitt með yfirmönnum sínum með því að hvetja yfir-
menn og undirmenn til samstarfs.
• Upplýsingar milli starfsmanna og stjórnenda skulu vera í ákveðnum farvegi svo sem stuttum
skiplögðum fundum.
• Starfsmannahald á aö sjá til þess aö starfsmenn fái laun sín á réttum tíma og að sem fæstar leiö-
réttingar þurfi að gera eftir á.
’ Halda skal skrá yfir mætingar, veikindi, orlof, menntun, endurmenntun og annað sem áhugavert er
fyrir fyrirtækið að vita um starfsmenn sína.
• Utanlandsferðir starfsmanna skulu vera metnar út frá þörf Hitaveitunnar og fjalla skal ýtarlega um
hverja ferð. Starfsmenn skulu kynna ferð sína fyrir þeim sem málið varðar þegar þeir koma heim.
Mynd 2 Staifsmannastefha Hitaveitu Reykjavíkur.