Bændablaðið - 15.03.2012, Síða 22

Bændablaðið - 15.03.2012, Síða 22
22 Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012 Unnið að uppbyggingu 20 hektara gróðurhúss þar sem framleitt yrði til útflutnings: Þátttaka Sölufélags garðyrkjumanna vekur upp spurningar – Búið að semja um orkukaup og sölu á tómötum til Bretlands næstu fimm árin Skotið hefur verið traustari stoðum undir áform um að reisa allt að 20 hektara gróðurhús, þar sem stefnt er að því að rækta tómata til útflutnings, með sölu- samningi til fimm ára við breska aðila. Þetta staðfestir talsmaður Geogreenhouse, félagsins sem vinnur að verkefninu. Í nóvember síðastliðnum samdi félagið við Orkuveitu Reykjavíkur um kaup á raforku, heitu og köldu vatni til 20 ára. Verkefni Geogreenhouse gengur út á að vinna að uppbyggingu á ylrækt- arveri sem rísa myndi í nágrenni Hellisheiðarvirkjunar. Þar yrðu fram- samkvæmt áætlunum gert ráð fyrir að fyrsti áfangi verkefnisins yrði tekinn í gagnið á komandi hausti. Þar væri um að ræða 5 hektara gróðurhús sem notaði 9 megavött af rafmagni árlega, skapaði 50 störf og framleiðslugetan væri um 300.000 tonn af tómötum á ári. Annar áfangi verkefnisins, sem væri af sömu stærðargráðu, yrði tekinn í gagnið 2014. Óvíst er hve- nær ráðist yrði í þriðja áfangann, sem yrði 10 hektarar. Stærstu hluthafar í verkefninu eru Sölufélag garðyrkju- manna (SFG), sem á 34,1 prósent, fjárfestingafélagið Investum, sem á 30 prósent og Nýsköpunarsjóður, sem á 20 prósenta eignarhlut. Spurningar vakna Ýmsar spurningar hafa þó vaknað í tengslum við þessar áætlanir, þá ekki síst um stöðu þeirra íslensku tómataræktenda sem fyrir eru. Áhyggjuraddir heyrast vegna um- fangs verkefnisins en fyrsti áfangi jafngildi þeirrar tómataframleiðslu sem nú er í landinu. Ef afsetja þyrfti framleiðsluna hér á landi á einhverj- um tímapunkti gæti það kollvarpað rekstri þeirra garðyrkjustöðva sem fyrir eru. Í þessu ljósi vekur aðkoma SFG nokkra athygli en SFG er hluta- félag u.þ.b. 50 garðyrkjubænda, þar á meðal tómatabænda. Gefa ekki upp samstarfsaðila Sigurður Kiernan, talsmaður Geo- greenhouse og stjórnarformaður Investum, segir að verkefnið sé enn í þróunarfasa. „Við höfum náð samningum við aðila úti í Bretlandi um sölu og verð á afurðunum til vegar ekki heimildir til að gefa upp hverjir þessir samstarfsaðilar okkar eru.“ Talað hefur verið um að taka fyrsta áfanga í notkun nú í haust. Eru það raunhæfar áætlanir? „Við höfum þann glugga ennþá opinn. Margt þarf að ganga upp áður en hægt verður að gefa út slíka áherslu á er að gera þetta vel, gull- tryggja að allt gangi upp, í stað þess að spóla af stað.“ Framleiðum það sem óskað er eftir Hversu mikið magn yrði hægt að framleiða á ári, eftir uppbyggingu fyrsta áfanga? „Það fer í sjálfu sér eftir þeim af- brigðum sem verða framleidd en við erum í grófum dráttum að reikna með um 300.000 tonnum á ári af tóm- mikið eftir tegundum, hvort við erum að framleiða einhver sérafbrigði eða venjulega tómata.“ Er þá ekki búið að ákveða hvaða af- brigði á að framleiða? „Við munum alltaf framleiða það sem óskað er eftir af okkar viðskipta- vinum úti, þannig að við stjórnum Engin pökkun hér heima - leiðsluna á erlendan markað, ekki satt? „Samkvæmt þeim samningi sem við höfum gert erum við skuld- framleiðum og á sama tíma eru við- skiptamenn okkar skuldbundnir til að kaupa allt sem við framleiðum. Því væri í sjálfu sér ekki heimild til að selja vöruna hér heima.“ En er möguleiki á því að eitthvað af framleiðslunni verði selt á innan- - ingstímanum loknum? „Ég sé ekki tilgang með því. Þetta verður byggt upp með það að mark- við verðum ekki með pökkunardeild Teikning af fyrirhuguðu ylræktarveri á Hellisheiði. Hellisheiðarvirkjun er í baksýn.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.