Bændablaðið - 15.03.2012, Side 42
42 Bændablaðið | fimmtudagur 15. mars 2012
Magnús og Ebba tóku við búinu
á Hóli af foreldrum Ebbu árið
1974. Jónatan kom inn í búskap-
inn 2003 og Una kona hans kom
svo að Hóli árið 2008.
Býli? Hóll í Önundarfirði.
Ábúendur? Jónatan Magnússon
og Una Lára Waage og börn
þeirra þrjú ásamt föður Jónatans
og móður, Magnúsi Hring
Guðmundssyni og Jensínu Ebbu
Jónsdóttur.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Jónatan og Una og börn þeirra
þrjú, Karen Drífa 7 ára, Signý
Lilja 2 ára og Baldur Benjamín 6
mánaða.
Stærð jarðar? Stærð jarðar er
ekki vituð með vissu. Ræktað land
20 hektarar. Svo eru slegnir 120
hektarar á hinum ýmsu leigujörð-
um í Önundarfirði og Dýrafirði..
Tegund býlis? Kúabú.
Fjöldi búfjár og tegundir? 75
mjólkurkýr, 155 geldneyti, og 50
kindur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Dagurinn hefst á að sinna kúnum og
gjöfum. Svo eru hin árstíðabundnu
störf unnin og reynt er að koma inn
úr fjósi 18.30.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Heyskapurinn er alltaf
skemmtilegur þegar vel gengur og
leitir eru líka ofarlega á listunum
yfir það sem er skemmtilegt. Þá
kemur mikið af góðu fólki og
húsið fullt af lífi. En bústörfin öll
eru skemmtileg ef allt gengur upp.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5
ár? Eftir 5 ár vonumst við til að
ná sama heyskap af færri túnum
með aukinni ræktun og endur-
ræktun.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda? Þau eru
ábyggilega í öruggum höndum og
þeim málum sinnt vel.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Við vonumst allavega eftir því að
íslenskur landbúnaður eigi eftir
að dafna og verða sterkari með
árunum.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara? Í íslenska kjötinu og
mjólkurafurðum og jafnvel
grænmeti.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Það er alltaf til mjólk, tómatsósa,
lýsi, rjómi og dijon sinnep.
Hver er vinsælasti maturinn
á heimilinu? Lambakjöt er alltaf
vinsælt, og nú nýverið hefur hús-
bóndinn tekið upp á því að gera
Sushi sem hefur fallið heimilis-
fólkinu vel í geð.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Eftirminnilegast er án
efa, þegar nýja fjósið var tekið í
notkun. Einnig er eftirminnilegt
þegar húsbóndinn og Árni á
Vöðlum, nágrannabóndi héðan úr
Önundarfirði, voru að prófa nýja
skítatankinn sem þeir fjárfestu í
saman. Skíturinn sprautaðist yfir
þá báða og húsbóndinn þurfti
að keyra heim á nærbuxunum
með vinnugallann í skóflunni á
traktornum.
Það er tiltölulega einfalt mál að
búa til gott pestó en kosturinn við
það er hvað hægt er að nota það
og kexi, ofan á brauð, út á kart-
öflurnar, sem grunn í salatsósur
eða með kjöti og fiski.
Steinseljupestó
100 g sléttblaða steinselja, án stilka
75 g valhnetur, ristaðar á þurri pönnu
¼ tsk. salt
2 hvítlauksrif, kramin
250 ml ljós ólífuolía
2 tsk. hunang
1 msk. sítrónusafi
2 tsk. sítrónubörkur, fínrifinn
150 g fetaostur í olíu
svartur pipar
Aðferð:
Maukið steinselju, valhnetur, salt,
hvítlauk, ólífuolíu, hunang, sítrónu-
safa og -börk saman í matvinnsluvél
þar til blandan er slétt. Bætið síðan
ostinum út í og piprið eftir smekk.
Klettasalatpestó
100 g klettasalat
100 g pekanhnetur, ristaðar á þurri pönnu
¼ tsk. salt
250 ml ljós ólífuolía
safi úr hálfri sítrónu
2 tsk. dökkur púðursykur
100 g parmesanostur, rifinn, eða stappaður
fetaostur
2 tsk. rósapipar, léttkraminn
Aðferð:
Maukið klettasalat, pekanhnetur,
salt, ólífuolíu, sítrónusafa og púður-
sykur saman í matvinnsluvél þar
til blandan er slétt. Bætið síðan
ostinum út í og kryddið með rósa-
piparnum.
/ehg
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Fallega rautt eða grænt pestó
hentar með fjölmörgum mat.
Mynd Gísli Egill Hrafnsson.
Litfagurt og gómsætt meðlæti
MATARKRÓKURINN
Baldur Benjamín, 6 mánaða, Signý
Lilja, 2 ára, og Karen Drífa 7 ára.
Hóll