Fréttablaðið - 05.04.2012, Blaðsíða 47
Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun sem annast stjórnsýsluverkefni á sviði sjávarútvegsmála, lax- og silungsveiði, fiskræktar, fiskeldis,
hvalveiða o.fl. Hlutverk Fiskistofu er jafnframt að safna upplýsingum um framangreinda málaflokka. Um starfsemi Fiskistofu gilda lög
nr. 36/1992 um Fiskistofu. Nánari upplýsingar má finna á www.fiskistofa.is.
Aðstoðarkerfisstjóri - gagnasafnsstjóri Fiskistofu
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði tölvunar- eða kerfisfræði eða sambærilegra greina
• Víðtæk reynsla og þekking á rekstri upplýsingatæknikerfa
• Reynsla og þekking á rekstri miðlægs tölvubúnaðar, netþjóna og netbúnaðar.
Reynsla af rekstri þjóna í blaðhögun og SAN kerfa er kostur
• Þekking og reynsla af notkun Linux og VMware stýrikerfa
• Þekking á netsamskiptum og öryggismálum upplýsingatæknikerfa. Reynsla af Cisco
netbúnaði er kostur
• Þekking á rekstri Oracle gagnasafnskerfa. Þekking og reynsla á sviði gagnasafnsfræði
og gerð SQL fyrirspurna er kostur
• Reynsla af skjölun og vinnu við gæðaferla er æskileg
• Skipulagshæfni, nákvæmni og geta til að vinna sjálfstætt að verkefnum
• Frumkvæði, góðir samstarfshæfileikar og geta til að miðla þekkingu og starfa í hópi
Verkefni:
• Staðgengill deildarstjóra kerfisdeildar
• Rekstur net- og vefþjóna, m.a. sýndarþjóna í blaðhögun
• Umsjón og eftirlit með búnaði í vélasal t.d. varaaflgjöfum
• Rekstur og umsjón Linux, VMware og Windows stýrikerfa
• Rekstur netbúnaðar s.s. svissa, beina, þráðlausra punkta og eldveggja
• Umsjón með netlögnum, nær- og víðnetstengingum og fjarfundakerfum
• Umsjón og rekstur Oracle gagnasafnskerfa og viðfangamiðlara
• Samþætting gagnasafna og -kerfa, eftirlit með sjálfvirkri gagnasöfnun
• Rekstur SAN kerfa
• Kerfisforritun (einkum skeljarit, Perl, PL/SQL o.fl)
• Rekstur Lotus Notes hópvinnukerfa
• Ráðgjöf við hönnun kerfa, þátttaka í hönnunarferli og kerfissetningu
• Þátttaka í kerfisþróun, nýsköpun, prófunum og innleiðingu á nýrri tækni
Fiskistofa leitar að aðstoðarkerfisstjóra kerfisdeildar. Kerfisdeild sinnir rekstri tölvukerfa Fiskistofu, Hafrannsóknastofnunarinnar og fleiri stofnana. Kerfisdeild er ein af
þremur deildum rekstrarsviðs Fiskistofu og eru starfsmenn deildarinnar fimm. Rekstrarsvið samanstendur einnig af hugbúnaðardeild og fjármáladeild. Kerfisdeild er með
aðsetur í Dalshrauni 1 og á Skúlagötu 4 auk þess að sinna þjónustustöðvum víða um land og á Íslandsmiðum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Örvarsson deildarstjóri kerfisdeildar og Elín Kristjana Sighvatsdóttir forstöðumaður rekstarsviðs í síma 569-7900.
Umsóknir sem hafa að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem máli kann að skipta sendist á netfangið ingath@fiskistofa.is eða
með bréfi til Fiskistofu, Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði merktar „Aðstoðarkerfisstjóri - gagnasafnsstjóri“.
Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2012. Laun taka mið af kjarasamningum ríkisins við viðeigandi stéttarfélag. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. regla nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum,
með síðari breytingum, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Icepharma Lynghálsi 13 110 Reykjavík Sími 540 8000 Fax 540 8001
Icepharma leitar eftir markaðsfulltrúa fyrir Norpharma
leitar að drífandi og faglegum einstaklingi í starf markaðsfulltrúa Norpharma Lyfjasvið Icepharma
Menntunar- og hæfniskröfur
sviði heilbrigðisvísinda, Háskólamenntun á
menntun
mannlegum samskiptum
-
Starfssvið
heilbrigðisstarfsfólk í samvinnu við Norpharma
Íslandi og erlendis
Gerð markaðsefnis