Fréttablaðið - 05.04.2012, Blaðsíða 65
Opið alla
páskana
í Bláfjöllum kl. 10–17
ÓKEYPIS
SKÍÐAKENNSLA
ÓKEYPIS
BRETTAKENNSLA
ÁRLEG PÁSKAMESSA Á PÁSKADAG KL. 13
5. apríl 2012 FIMMTUDAGUR 45
FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson
hefur verið valinn leikmaður
marsmánaðar í ensku úrvals-
deildinni en það var tilkynnt í gær.
„Þetta er mikill heiður fyrir mig
og ég bjóst ekki við þessu. Það eru
margir mjög góðir leikmenn sem
hafa fengið þessi verðlaun,“ sagði
Gylfi við Fréttablaðið í gær.
Gylfi spilaði afar vel með Swan-
sea í síðasta mánuði og skoraði þá
fjögur mörk. Hann skoraði bæði
mörkin í 2-0 sigri á Wigan og svo
fyrstu tvö mörkin er Swansea
hafði betur gegn Fulham, 3-0. Alls
vann liðið þrjá af fjórum leikjum
sínum í marsmánuði og var Gylfi
lykilmaður í sóknarleik liðsins.
Engum Íslendingi hefur áður
hlotnast þessi heiður en Gylfi er
fimmti Norðurlandabúinn sem fær
útnefninguna. Hann er jafnframt
fyrsti leikmaður Swansea frá upp-
hafi sem verður fyrir þessu vali.
„Ég fékk fréttirnar á æfingu í
gær og var það mjög skemmtilegt.
Strákarnir í liðinu voru ánægðir
fyrir mína hönd og vonandi eru
þetta bara fyrstu verðlaunin af
mörgum hjá mér,“ bætti Gylfi við.
Gylfi er í láni hjá Swansea frá
þýska félaginu Hoffenheim en
hann er samningsbundinn félaginu
til 2014. Hann hefur slegið í gegn
síðan hann kom til Swansea í
janúar og verið orðaður við mörg
stærstu lið Evrópu, til að mynda
Manchester United og Inter. Óvíst
er hvað tekur við hjá Gylfa í sumar
en gera má ráð fyrir því að verð-
mæti hans aukist með degi hverj-
um með þessu áframhaldi, hafi
forráðamenn Hoffenheim á annað
borð áhuga á að selja kappann.
Hann verður væntanlega í eld-
línunni þegar Swansea tekur á
móti Newcastle á morgun klukk-
an 15.30. - esá
Gylfi Þór Sigurðsson fyrsti Íslendingurinn sem er valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni:
Gylfi Þór bestur allra í Englandi í marsmánuði
GYLFI ÞÓR Hefur notið mikillar velgengni
með Swansea eftir áramót.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Meistaradeild Evrópu
FJÓRÐUNGSÚRSLIT
Chelsea - Benfica 2-1
1-0 Frank Lampard, víti (21.), 1-1 Javi Garcia (84.).
2-1 Raul Meireles (92.).
Chelsea vann samanlagt, 3-1.
Real Madrid - APOEL 5-2
1-0 Cristiano Ronaldo (26.), 2-0 Kaka (37.), 2-1
Gustavo Manduca (67.), 3-1 Ronaldo (76.), 4-1
Jose Callejon (80.), 4-2 Esteban Solari, víti (82.),
5-2 Angel Di Maria (84.).
Real Madrid vann samanlagt, 8-2.
UNDANÚRSLIT
Bayern München - Real Madrid 17./25. apríl
Barcelona - Chelsea 18./24. apríl
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Ísland mátti þola sárt
tap fyrir Belgíu ytra, 1-0, í und-
ankeppni EM 2013 í gær. Tessa
Wullaert skoraði eina mark leiks-
ins um miðbik síðari hálfleiksins.
Ísland hafði sótt nánast sleitu-
laust fram að markinu í seinni
hálfleik auk þess að Hólmfríður
Magnúsdóttir fékk dauðafæri í
fyrri hálfleik sem henni tókst
ekki að nýta. Þegar Belgar skor-
uðu hafði Ísland átt ellefu skot að
marki en Belgar eitt.
Bæði lið fengu svo tækifæri til
að skora eftir markið en allt kom
fyrir ekki.
Þetta var fyrsti tapleikur
Íslands í riðlinum og komst
Belgía með sigrinum á topp-
inn. Belgar eru með fjórtán stig,
Ísland þrettán og Noregur ellefu.
Ísland og Noregur eiga þó leik til
góða á Belga.
Ísland mætir Ungverjalandi
og Búlgaríu í júní og svo Nor-
egi ytra í september. Þrátt fyrir
tapið þurfa stelpurnar aðeins að
treysta á sig sjálfar til að komast
áfram og gera það með því að
vinna síðustu þrjá leiki sína í riðl-
inum. Úrslitakeppni EM fer fram
í Svíþjóð í júlí 2013. - esá
Undankeppni EM 2013:
Svekkjandi tap
Íslands í Belgíu
TAP Í GÆR Hólmfríður Magnúsdóttir í
fyrri leiknum gegn Belgíu í riðlakeppn-
inni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Aga- og úrskurðar-
nefnd Körfuknattleikssambands
Íslands kom saman í gær og
tók fyrir kæru sem barst eftir
viðureign tvö milli Keflavíkur
og Stjörnunnar í úrslitakeppni
Iceland Express-deild karla en
leikurinn fór fram mánudaginn 2.
apríl. Stjörnumenn kærðu meint
viljandi olnbogaskot Magnúsar
Þórs Gunnarssonar, fyrirliða
Keflavíkur.
Aga- og úrskurðarnefnd hafn-
aði kröfu Keflavíkur um frávísun
en hafnaði einnig kröfu Stjörn-
unnar um að Magnús Þór verði
dæmdur í bann vegna atviks-
ins. Þá var kröfu Keflavíkur um
ómaksþóknun einnig hafnað. - óój
Magnús Þór ekki í bann:
Kæru Stjörn-
unnar vísað frá
LYKILMAÐUR Magnús Þór Gunnarsson í
leik með Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN