Fréttablaðið - 05.04.2012, Blaðsíða 10
5. apríl 2012 FIMMTUDAGUR10
MYNDASYRPA: Hvalskipin í Hvalfirði
BIÐIN LANGA Hvalskipin Hvalur 6 og Hvalur 7 voru dregin upp í fjöruna við hvalstöðina í Hvalfirði í fyrrahaust. Hér bíða þau þess að verða gerð klár til
veiða. Eins og kunnugt er var skipunum tveimur sökkt í Reykjavíkurhöfn fyrir um aldarfjórðungi af umhverfisverndarsamtökunum Sea Shepherd, en
skipin hafa frá þeim tíma látið mjög á sjá í löngu aðgerðarleysi.
TÍMINN OG SAGAN Skutur skipa fyrr á öldum var híbýli skipstjóra
og hefðarmanna. Mjög var því vandað til skreytinga á þessum
hluta skipa og skörtuðu þau oftar en ekki fallegum útskornum
myndum. Í Hvalfirði er maður minntur á tímann og söguna.
HVALUR RÍS Það þarf ekki mikið hugmyndaflug til að lesa í þær myndir sem tíminn hefur teiknað á kinnunginn á Hval 7. Hér
er sem tignarlegur hvalur rísi úr djúpinu til að sýna myndugleik sinn, en í myndinni felst líka kaldhæðni í ljósi hlutverksins sem
skipið gegndi áður fyrr.
MIKIÐ VERK Ef hvalskipin eiga að sigla til veiða í framtíðinni bíður manna nokkuð verk.
En þó er það þekkt að hrörlegt útlit skipa blekkir oft augað. Því er það ekki útilokað,
þó það virðist ólíkindatal, að hvalskipin fái uppreisn æru áður en langt um líður.
HRÚÐURKARLAR Eins og ættingjar sínir þarf fjörukarlinn, en það nafn ber algengasti hrúðurkarlinn hér við land, tíma til að koma
sér fyrir. Fjörukarlinn ver lífi sínu sem fullorðið dýr á sama stað, og því er hlutskipti hans og dvalarstaðarins ekki með öllu ólíkt.
Sem hvalreki
í fjörunni
Í fjöru í Hvalfirði liggja tvö skip með mikla sögu
og bíða. Hvalur 6 og Hvalur 7 drógu björg í bú um
langt skeið en var sökkt í Reykjavíkurhöfn árið
1989. Ljósmyndarinn Vilhelm Gunnarsson kom við í
fjörunni í Hvalfirði og festi baráttu skipanna fyrir
lífi sínu á mynd.