Fréttablaðið - 05.04.2012, Blaðsíða 27
Íslensk hönnun
í fermingarpakkann
Fermingartilboð
Gerið GÆÐA- og verðsamanburð
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
12 má
naða
vaxtal
ausar
greiðs
lur*
Stærð Verð Tilboð
120x200 84.900 kr. 79.900 kr.
VALHÖLLNý hönnun
5 svæðaskipt gormakerfi, gæðabólstrun,
stál kantstyrkingar
Verð með íslenskum botni og fótum
10.000 kr
. vöruútte
kt
fylgir öllum
fermingar
rúmum
*3,5%
lánt
ökug
jald
Uppáhaldsflíkin mín er samfestingur sem ég valdi mér frá kærastanum fyrir útskriftina úr HÍ. Við keyptum
hann í Kaupmannahöfn og mér þykir
voða vænt um hann. Hann er öðruvísi,
sumarlegur og sætur,“ segir Margrét
Jústa Pétursdóttir, starfsmaður viðhalds-
deildar Atlanta, þegar blaðamaður hnýs-
ist í skápana hennar.
Hún viðurkennir að vera soddan tísku-
drós og eiga fullan skáp af fötum. Hún
segir að sinn stíll sé dömulegur en hún
rokki hann öðru hvoru upp. „Ég kaupi föt
aðallega í útlöndum. Ég bjó í Kaupmanna-
höfn um tíma og þar er sumarið lengra en
mér finnst mjög gaman að klæða mig upp
á sumrin í kjóla. Ég er tískudrós þó að ég
fylgi kannski ekki endilega tískustraum-
um. Ég klæði mig í það sem mér finnst
flott og vil ekki falla í fjöldann.“
Sú flík í fataskáp Margrétar sem
kemst næst því að vera uppáhalds er
spariskyrta sem hana hafði lengi dreymt
um áður en hún endaði í skápnum.
„Ég hafði haft augastað á henni í Libo-
rius búðinni. Hún kostaði 99.000 krónur
og ég tímdi aldrei að kaupa hana, fór
samt margoft og mátaði og lét mig
dreyma. Einn daginn sagði eigandinn
mér að búðin væri að hætta og eftir viku
yrði haldin lagersala. Hann skyldi taka
skyrtuna frá fyrir mig, það væri augljóst
að hún yrði að verða mín.“
Margrét er einnig liðtæk á saumavél-
ina og kíkir oft í Kolaportið eftir fötum
til að þrengja, stytta og breyta. Hún vill
þó ekki viðurkenna að í henni blundi
fatahönnuður. „Nei, þetta er áhugamál.
Ég hef bara mjög gaman af fötum og
tísku.“
SODDAN TÍSKUDRÓS
DÖMULEGUR STÍLL Margrét Jústa Pétursdóttir á fullan skáp af fallegum fötum
sem flest er keypt í útlöndum. Útskriftargallinn er í uppáhaldi.
SUMARLEGUR
Samfestingurinn sem
Margrét Jústa útskrifað-
ist í úr Háskóla Íslands.
MYND/VILHELM
MESSAÐ Í BLÁFJÖLLUM
Gott skíðafæri er í Bláfjöllum og þar verður opið um
páskana. Rútuáætlun verður tvöföld, bæði helgar- og virkra
daga áætlun. Guðsþjónusta verður á páskadag kl. 13.00.
Félagar úr kór Bústaðakirkju leiða söng við undirleik og
stjórn Jónasar Þóris. Prestur er séra Pálmi Matthíasson.
FELLUR EKKI
Í FJÖLDANN
„Ég er tískudrós þó
að ég fylgi kannski
ekki endilega tísku-
straumum. Ég
klæði mig í það
sem mér finnst
flott og vil ekki falla
í fjöldann.”512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
TANGLED
Skírdag kl. 19:00
ARCTIC TALE
Annan í páskum
kl. 19:00
SKOPPA OG SKRÍTLA