Heimilisritið - 01.05.1947, Page 14

Heimilisritið - 01.05.1947, Page 14
nokkrar af bókum hans og þykir lítið til koma). í fylgd með rithöf- undinum var kvenmaður, sá digr- asti sem ég hef augum litið, með pokakinnar og lítil grísaraugu, sem ævinlega flutu í vatni er aldrei draup. (Það var ákaflega tauga- skakandi: ég sat andspænis kon- unni við máltíðar og óttaðist, að nú myndi það drjúpa, en það draup aldrei). Hún virtist una sér bezt fyrir framan arininn, og streittist við að sperra hnjákollana .sem fengst hvorn frá öðrum og hélt höndum máttleysislega undir ýstru sér. Hún sat þarna hreyfingarlaus líkt og höggmyndin „Brostnar vonir“ eftir einn eða annan harð- soðinn listamann. Iíinn maðurinn var lítill og grannur á vöxt, gráhærður og góð- legur með blá veraldarfjarræn augu, maður hinnar hlédrægu, feimnu, rómantísku tegundar. Um hinn kvenmanninn er óþarft að fjölyrða, þar eð hún framsegir einungis örfáar setningar og er að öðru leyti sögunni algjörlega óvið- komandi. Eitt kvöldið æsti hann sig upp í storm með svörtum éljum sem knúðu rúðurnar með gný, líkast- an æðisgengnum trumbuslætti. Skálinn nötraði og skalf í storm- hviðunum. Þær urðu æ öflugri og nokkur óró greip gestina. Þeir settu frá sér bækurnar og lögðu við hlustir. Eins fór mér, Okkur varð litið hvert lil annars og það var eins og við uppgötvuðum nú fyrst, að við sátum öll í sömu stofunni. Lágvaxni maðurinn brosti vandr- æðalega og sagði: — Það lítur út fyrir að hann ætli að ná sér upp í ofsa í nótt. — Það ber ekki á öðru, sagði rithöfundurinn svefndrukkinn. — Guð varðveiti sjómennina í þessu veðri, sagði sú konan, sem ég hef verið fáorðari um. Lágvaxni maðurinn reis á fætur og tók að spásséra fram og aftur um gólfið. Skömmu síðar fór rit- höfundurinn að dæmi hans. Eg fylgdi fordæmi þeirra eftir góða stund. Við spígsporuðum aftur og fram um salargólfið, allir þrír, stungum við fótum, hlustuðum og héldum áfram göngunni, og kon- urnar fylgdu okkur með augunum. Allt í einu slokknaði ljósið. Eld- urinn snarkaði í arninum og varp- aði rauðleitum bjarma í hálfhring fram á gólfið, annars var niða- myrkur í salnum. Og eins og flug- urnar sækja í ljósið Tærðum við okkur ósjálfrátt'inn í bjarmahring- inn framan við arininn. Við sátum þar öll þegar frammi- stöðustúlkan kom með Ijósastjaka með þrem kertum, sem hún kom fyrir uppi á arinbríkinni. Ljósin blöktu og kjmlegar skuggamyndir liðu yfir rauð, draugsleg andlit okkar. Stormgnýrinn, trumbudyn- urinn á rúðunum, flöktandi ljósið, HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.