Heimilisritið - 01.05.1947, Blaðsíða 57
hláturinn. Þú getur séð, að hún
gerir margar athugasemdir í hug-
anum, án þess að mæla orð. Hún
getur hlustað á aðra með.athygli
segja ómerkilegar sögur, eins og
hún væri að hlusta á sjónarvott
segja frá árásinni á Pearl Harbor.
Vegna þess að hún hefur svo
mikinn áhúga á því, sem gerist í
kringum hana, hefur hún ekki
tíma til að hugsa eingöngu um
sjálfa sig. Hún hefur ekki þessa
sjálfsmeðvitund. sem gerir svo
margar konur óstyrkar, að þær
þurfa síféllt að vera að fingra við
hárið á sér, líta í spegil eða lita á
sér varirnar.
Og'þótt hú^ hugsi mikið um
hjónabandið þá er hún ekki eins og
sumar sannkallaðar mannætu-
Hnyttnar setningar
kvensur, sem ætla að eta bændur
sína og börn með eigingirninni. Ég
er ekki fangi hennar og hún er
ekki eftirlitsmaður minn.
Og hver er svo árangurinn?
Það er svo einkennilegt, ágætu
dömur, að árangurinn er sá, að
Helena hefur sannfært sig um mína
þrælslegu undirgefni. Hún hefur
ekki belgt sig út með rifrildi,
hömlum eða eftirliti, svo að sá
leiði djöfsi andúðarinnar komi í
ljós, sem fær menn til að brjótast
um á hæl og hnakka í þeim til-
gangi að ná frelsi sínu og sjálf-
stæði. Ég hef enga löngun til að
brjótast út úr fangelsi, þar sem
engir rimlar eða lásar eru. Ég finn
til þakklætis, tryggðar og trausts
—en aldrei, aldrei til ótta.
Ef kona segir við karlmann: „Þú ert laglegur", t>á trúir hann því sjaldan;
en ef hún segir: „Þú ert sniðugur", trúir hann því undantekningarlítið.
' Exelsior.
Prjónarnir veita konunni eitthvað til að hugsa um á meðan hún er að tala.
Neal O’Hara.
Karlmenn tala uin kvenfólk; kvenfólk talar um ást.
Exelsior.
Korlmaðurinn getur ekki hugsað sér neitt, sem hann þarfnast af fötum i
bráð, en konan getur ekki hugsað sér neitt af fötum, sem hún þarfnast ekki.
Alfred Pemberton Magazine.
Bezta ráðið til þess að sigrast á freistingum er að láta þær eftir sér.
Oscar Wilde.
HEIMILISRITIÐ
51