Heimilisritið - 01.05.1947, Blaðsíða 15

Heimilisritið - 01.05.1947, Blaðsíða 15
alit þetta kora okkur í stemmn- ingu til að hlusta á raergjaða draugasögu, og við hlustuðum og litum spyrjandi hvert á annað. Og þá var það, að konan sem ég hef ekki eytt neinu púðri á, lauk upp munninum öðru sinni: — Ætli skáldið hafi ekki eitt- hvað skemmtilegt að segja okkur meðan við biðum eftir Ijósinu? Til dæmis draugasögu? — Eg veit ekki, sagði skáldið og varp öndinni mæðulega, líkt og konan hefði vakið hann af værum blundi. — Jú, það verðið þér endilega að gera, sagði smávaxni maðurinn feimnislega. — Bíðum nú hæg, sagði skáldið. Ég er ekki hjátrúarfulur: Hvernig í ósköpunum á ég svo að fara að því að segja ykkur draugasögu? — Þér um það, upplauk konan munninum hið þriðja sinn og hló við. — Allright, ég skal gjarnan segja ykkur draugasögu, sagði skáidið að lokum. Og síðan hóf hann sög- una: — Það eru nú hartnær tuttugu ár síðan, og ég var ungur þá, tutt- ugu og fjögra ára. Árinu áður hafði ég debúterað með róman og hlot- ið lofsainlega dóma, og nú hafði ég búið sumarlangt í litlu húsi í ná- munda við Grindavík. Eg vann að nýrri skáldsögu. Húsið var mjög heppilegt fyrir mann, sem einbeitti sér að andlegri vinnu, og um haust- ið hafði ég lokið bókinni. Systir min hafði verið ráðskona hjá mér þessa mánuði. Daginn áður en við fluttum aftur til höfuðstaðarins fórum við fótgangandi til Grinda- víkur til að undirbúa flutninginn, tryggja okkur bíl q. s. frv., auk þess til að kveðja vin minn lækn- inn. Við vorum í þorpinu þar til liðið var fast að miðnætti. Læknirinn vildi ólmur að við gistum hjá sér um nóttina, en ég hafnaði boðinu. Veður var gott, kyrr.t og bjart af tungli og þ>að var ekki meira en þrjúkortérs gangur út að húsinu. Vegurinn lá drjúgan spöl inn með ströndinni. Systir mín var dálítið myrkfæl- in og ég leiddi hana og reyndi að belja í hana kjark með spaugsyrð- um. Það var fullt tungl og hafið hvíldi í srlfurhvítri þögn svo langt sem augað eygði. Mér fannst hlægi- legt að vera myrkfælinn í svo björtu og unaðslegu veðri, en skömmu síðar hafði óttinn náð kverkataki á mér líka. Því í sama mund og vegurinn sveígði inn í hraunið . greip systir mín skyndi- lega um handlegg mér og hvíslaði óttaslegin: — Sjáðu, sjáðu! Hver getur þetta verið? Spölkorn á undan okkur á veg- inuni sá ég á bakið á manni. Hahn var lítill vexti og virtist klæddur 9 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.