Heimilisritið - 01.05.1947, Blaðsíða 19
Viltu vera eftir-
sóttur félagi?
f-------------------------------------------------------N
Allir vilja vera vinsælir. Til þess að geta verið góðir sam-
kvæmismenn þurfum við að hafa vissa eiginleika, sem hægt
er að ávinna sér, eins og sýnt er fram á í þessari smágrein
— eftir H. J. GARDNER os P. FARREN.
V________________________________________________ j
HVER hefur ekki löngun til
að vera góður félagi, vinur, sem
er velkominn hvar sem hann fer,
er saknað þegar hann er fjarver-
andi og aldrei gleymist að bjóða
þangað sem glatt er á hjalla?
Hvers er krafist af góðum sain-
kvæmismanni og hvaða eiginleika
þarf hann að liafa? Svarið er:
Glaðlyndi, einlæg samúð, hógvær
framkoma, siðfágun, jafnvægi, vit-
rænn, einlægur áhugi á lífinu í
heild, og framar öllu öðru, kurteisi.
Hugsaðu til þeirra kunningja
þinna, sem alltaf eru eftirsóttir.
Gerðu þér stuttlega grein fyrir
helztu eigin'leikum þeirra. Þér mun
verða ljó?t, að þeir búa undantekn-
ingarlaust yfir undarlegum óskil-
greinanlegum eiginleika, áberandi
þokka, sem stafar af öllum þess-
um ómetanlegu persónueinkenn-
um, sem öll er hægt að rækta og
þroska með manni sjálfum.
Ef til vill kýst þú að loka þín-
um innra manni — eins og brodd-
gölturinn, sem hniprar sig saman
— og segja sem svo: „Gott og vel,
en þessir fáu, þokkasælu náungar,
sem hamingjan hefur brosað við,
eru allt öðru vísi. Þeir hafa enga
minnimáttarkennd eins og ég, þeir
eru ekki viðkvæmir og feimnir“.
Ef til vill hafa þeir einhverntima
átt við þetta að stríða, hver veit.
Það væri ekkert undarlegt, þó að
þannig hefði verið. Jafnvel margir
frægir menn á ýmsum tímum, sí-
gildir rithöfundar, skáld, tónsnill-
ingar, vísindamenn eða hernaðar-
HEIMILISRITIÐ
13