Heimilisritið - 01.05.1947, Blaðsíða 45
sjónum óvinanna, en mörgum
sprengjum var samt va'rpað á þá
af handahófi. Óvinirnir skutu nú
stöðugt af fallbyssum á höfnina,
þótt þeir hittu ekki mjög vel. Þeir
gátu ekki séð, hvar kúlurnar
sprungu. Tveir af tundurspillum
okkar urðu fyrir tundurskeyti
þennan morgun, þegar þeir voru á
leiðinni til Dover, lilaðnir her-
mönnum. Manntjón varð mjög
mikið. Skipin okkar hófu skothríð
á skip, sem sást í útsuðri. Það
sprakk upp með miklum blossa.
Menn héldu að það hefði verið
þýzki tundurskeytavélbáturinn,
sem sökkti skipunum okkar.
Seinni part dagsins gekk útskip-
unin fremur vel — eða nálægt tvö
þúsund manns á klukkutíma.
Reykurinn var ekki eins þéttur.
Vindurinn hafði gengið til á átt-
inni, og blés honum inn til lands-
ins. Tíu skip lágu innan við garð-
inn, en fjögur biðu eftir að komast
að. Það fór ekki hjá því að óvin-
irnir sæu, hvert skotmark þetta
var. Þeir sendu mikinn fjölda af
sprengjufiugvélum. í hálfa þriðju
klukkustund, frá kl. 4, rigndi
sprengjum á hafnarmynnið. Enda
varð tjónið stórkostlegt.
Þrjú af skipunum við bryggjuna
komust á brott, mikið löskuð, í
þremur kviknaði. Eitt þessara
brennandi skipa, Grenade, virtist
vera um það bil að sökkva í renn-
unni. Það hefði áreiðanlega sokkið
þar ef ekki hefði verið höfð snör
handtök: togari dró það burt í
tæka tíð. Verity, sem var að sigla
út úr hafnarmynninu, rakst á sokk-
inn reknetabát og var næstum far-
ið sömu leið. II.M.S. Sabre, gamall
brezkur tundurspillir, smíðaður
hjá Stephen árið 1918, eitt af allra
frægustu skipum fyrir þátt sinn í
störfum þessarar viku, fann nokkra
menn, sem voru að berjast um í
sjónum, þegar hann slapp út úr
höfninni. ,,Hann hafði enga báta,
því að aðstoðarforinginn var með
alla skipsbátana að flytja menn frá
ströndinni, og varð hann því að
stýra til hvers manns um sig, og
bjarga þefm þannig einum og ein-
um. A meðan hann var að þessu,
varð hann fyrir steypiárásum hvað
eftir annað“.
Það er lítill vafi á því, að þetta
var mesta loftárásin á meðan á
björguninni stóð. Hún olli stórtjóni
á bryggjunni og bruna og skemmd-
um á s'kipunum. Róbert Bill, und-
irforingi, D.S.O., R.N., bjargaði
innsigfingunni frá að teppast af
skipsflökum með snarræði sjó-
mannsins.
Klukkan sex um kvöldið, þegar
skipið King Orry var að sigla inn,
sáu skipverjar að eingöngu brenn-
andi og sökkvandi skip voru á
höfninrri. Skipið beið þarna fram
yfir miðnætti, í miklum loftárás-
um frarnan af. Nokkur spítala-
skip urðu fyrir mörgum sprengjum
HEIMILISRITIÐ
39