Heimilisritið - 01.02.1948, Blaðsíða 15
Daginn eftir koin maður frá
rannsóknarlögreglunni. Frú
Mauser var sannfærð um, að
morðið yrði ekki sannað á hana,
enda bar svipur lögreglumanns-
ins fremur vott um sorg cn grun-
semdir.
„Attuð þér son, frú Mauser",
spurði hann, „sem hét C'arl og
var fluttur til Ameríku?"
„Já, já“, svaraði móðirin, him-
inlifandi yfir því að fá tækifæri
til að tala um þetta hjartans mál
sitt, í stað þess að þurfa að
svara spurningum varðandi
morðmálið, eins og hún hafði bú-
ist við.
„Þá skulið þér búa yður und-
ir að heyra sorgarfréttir", sagði
lögreglumaðurinn. „Hann var
rændur og myrtur síðast liðna
nótt. Mynd lians og nafn er á
vegabréfinu, sem fannst á Hk-
inu“.
Gamla frúin leit andartak á
blóðuga andlitsmynd gests henn-
ar, rak upp hræðilegt óp og datt
dauð niður. Dóttir hennar skýrði
lögreglunni síðar frá þ\í scv*
gerst hafði.
Reyndu að vera elskhugi!
r ns '
p-v
r
: *
r
Konan hœttir aldrei að' verð'a gafintekin af því að henni sé sýnd ástúð, og
með því að henni er eðlilegt að finnast hún lítið eitt minni máttar, þráir
hún þá yfirburðatilfittningu, sem er samfara þvf að finna sig þess megnuga
að vekja tilbeiðslu. Svo ef þú vilt að hjónabandið sé farsælt, þá komdu ffkki
fram við konu þina eins og hversdagslegan hlut.
Mundu að veita henni sýnilcg merki um ást þína. blóm, konfekt, sokka,
ilmvötn — eða koma henni á óvart með hugulsemi ■— eða muna ávallt hvað
henni er sérlega hugleikið. Og vertu ekki alltaf óvæginn í gagnrýni þinni á
útliti hennar, fötum eða skoðuuum. Minnstu Jjcss, að konan tekur mcira tillit
til þessara hlutu en nokkur karlnmður getur gert, og er því vel .á verði
jafnskjótt og þeir berast í tal.
Reyndu að muna, að konan þín eyðir deginum til að rækja tilbreytingar-
laus skvldustörf — og veit vel. að þú munir aldrei veita henui neina viður-
kenningu fyrir mörg jressara starfa — en lieimur hennar er takmarkaður og
hún þráir nýjungar og ný sjónarmið. Reyndu þess vegna að segja henni frá
einhverju, og gættu þess að svipur þinn og fas vitni um áhuga og góðan
vilja, í stað þess að sýna einungis leiða yfir nærveru hennar, og þú munt
verða undrandi yfir árangrinum. Fleiri konur verða óánægðar vegna þess,
að maðurinn situr þegjandalegur bak við kvöldblaðið, heldur en vegua of
málgefinna manna. (Mary G. Carwdl, .V. D.)
13
HEIMILISRITIÐ