Heimilisritið - 01.02.1948, Side 19
fylgdu, ollu því, að hann flýði af
landi burt með alla þá gimsteina
er hann festi hönd á, fluttist til
London og settist að í Bond
Street. Þar stofnaði hann gim-
steinavendun er blómgaðist vel.
Ranían dó skönnnu síðar, lík-
lega hefur hjarta hennar brostið.
Englendingurinn sat inni í því
nær fimm ár. Enska fegurðar-
mærin, sem næstum hafði oltið
úr vagninum sínum, fékk nóg af
Indlandi og gerði einnig för sína
til London, þar sem hún kom sér
fyrir í snoturri íbúð á Savoy,
meðan hún beið eftir að Cheni-
ston, eiginmaður hennar, kæmi
heim úr rannsóknarleiðangri frá
Suður-Ameríku, að því er hún
sagði hótelhaldaranum.
Frásögn hennar var túað, enda
hafði hún hrífandi fegurð til að
bera og óaðfinnanlega fram-
komu. Sá dagur rann einnig
upp, er Cheniston kom, hörunds-
dökkur af sólarhita, með bros á
íestulegum vörum og kulda í
augum. Hár hans, sem var tekið
að grána í vöngum, var ávallt
vel greitt og föt hans voru óað-
finnanleg. En hendur hans báru
vott um, að hann hefði þurft að
nota þær óspart. Konan hans
fékk tár í augu, þegar hún leit
á þær.
,,Þú hefur þá haft það eins
gott hér og kýr á smáraengi, vina
mín“, sagði Cheniston ánægju-
lega, en varð kvndugur á SA'ip
við svar konu sinnar.
„Hver heldurðu, að ég sé?
Heldurðu, að ég sé ekki annað
en stofubrúða? Hvernig geturðu
ímyndaða þér, að mér hafi liðið
fullkomlega vel hérna? Ég hef
verið gjöreyðilögð manneskja frá
því ég fluttist hingað“.
„Eg hélt þér myndi koma til
með að líða vel hérna, DoIly“,
anzaði maðurinn hennar. „Við
ættum að minnsta kosti ekki að
þurfa að hafa það slæmt tvo
saman“.
„Ég er orðin dauðleið á öllum
þessum lúxus! Ef ég ekki hefði
verið búin að lofa þér því, að
bíða hérna eftir þér, hefði ég alls
ekki haldið það út!“
„Eru peningar þér þá ekki
meira virði en þetta?“
Ovenjulegt bros færðist yfir
andlit frú Chenistons, líkt og
sólargeisli. „Ég myndi auðvitað
hafa meiri gleði af þeim núna,
eftir að þú ert kominn heim“,
sagði hún. „Mér mun ekki finn-
ast ég’ vera lengur einmana eða
lífsleið, Tom, bara ef þú verður
gætnari; við getum farið eitt-
hvað burtu saman og fengið
meiri hvíld og öryggi en hingað
til“.
Hann kj’ssti hana heitum kossi
og lagði vanga sinn að vanga
hennar.
„Við munum áreiðanlega gcta
HEIMILISRITIÐ
n