Heimilisritið - 01.10.1954, Blaðsíða 10
\
SAMK VÆMISRÁD
SHERMAN
BILLINGSLEY,
eigandi hinnar þekktu
veitingastofu Stork Club
x New York, gefur hér
nokkur samkvæmisráð.
_____________________I
Lz_______________________i
MÓÐIR MÍN benti mér á
grundvallaratriði góðs sam-
kvæmis fyrir mörgum árum,
þegar hún hélt mjög svo látlaus
samkvæmi 1 Oklahoma. „Þegar
engar laglegar konur eru til
staðar, verða karlmennimir
daufir 1 dálkinn.“
Það er auðvelt að halda góð
og veLheppnuð samkvæmi, ef
maður gerir sér ljóst, að konur
hafa bæði áhuga á konum og
körlum, en í samkvæmislífi hafa
karlmenn einungis áhuga á
kvenfólki. Það merkir ekki að
8
karlmenn séu þetta léttúðugri.
Það er normalt fyrir þá, að lað-
ast að konum, og kvenfólkið
myndi ekki ná upp í nefið á sér,
ef karlmenn misstu þessa frum-
stæðu hvöt, sem jafnvel gerir
vart við sig hjá hinum tryggasta
eiginmanni. Hópur kvenna get-
ur notið sín ágætlega við borð-
hald eða tedrykkju. Þær hafa
áhuga á málefnum hverrar ann-
arrar, og hafa gaman af að rabba
um föt, börnin sín, eða segja
slúðursögur.
En ef karlmenn verða að tala
saman allt kvöldið, geta þeir
sjaldan gert sér að góðu svo
hversdagsleg og lítilmótleg um-
ræðuefni. Ef þeir tala saman í
trúnaði, er það um kvenfólk, og
óska þess jafnframt, að eitthvað
af því væri komið. Annars deila
þeir og verða illir.
Þegar karlmenn láta smala sér
í samkvæmi, fara þeir ekki til
að rabba um alla heima og
HEIMILISRITIÐ
/