Heimilisritið - 01.10.1954, Síða 27

Heimilisritið - 01.10.1954, Síða 27
hveitibrauðsdagana úr hálfum mánuði í sjö ár. Þau.höfðu verið heppnari en flest önnur ung hjón. Ef til vill fór svona um alla. Þau eltust. Þau voru ekki börn lengur. Nú voru þau tekin að stillast. Hún ásetti sér að tala um það við Jónatan, er hann kæmi heim. En þegar hann opnaði dyrnar um kvöldið, sá hún á hrukkun- um á enni hans, að betra myndi að fresta þessum umræðum. Jónatan kyssti hana af skyldu- rækni, og hún tók við hattinum hans og skjalatösku. Augu henn- ar voru skær og tindrandi. Hún reyndi að fá hann til að brosa. „Hefur þetta verið slæmur dag- ur?“ spurði hún. „Ég hef verið í réttinum í all- an dag. Ég er dauðuppgefinn." „Þú ættir að fá þér steypibað til að hressast," sagði Anna. Hann hristi höfuðið. „Ég vil bara borða og hátta svo.“ „En góði, það geturðu ekki.“ „Get ég ekki?“ Rödd hennar var hlý og sam- úðarfull: „Jónatan, þú hefur gleymt, að Jean og Tom koma til kvöldverðar.“ „Getum við þá aldrei átt ró- legt kvöld saman heima?“ spurði hann. „Þetta hús líkist meira og meira almennu veitingahúsi.“ Það hafði gerzt eitthvað mjög svo hrapalegt með kraftaverk Önnu og Jónatans. Það verkaði ekki lengur — þau skemmtu sér ekki vitund. Þau gerðu aldrei framar neitt eftir skyndiduttl- ungum. Nú var allt vandlega skipulagt fyrirfram. Jónatan kom aldrei framar heim með blómvönd og lítið spjald, sem stóð á: „Gleðilegan fimmtudag!“ Anna tyllti sér ekki framar á tá og kyssti hann á nefbroddinn. Anna og Jónatan höfðu skipt á rennibraut sinni og hringekju. Eini gallinn var sá, að hún fór aðeins hring eftir hring og þau komust aldrei út úr henni. í vikulokin stóðu Anna og Jónatan hvort andspænis öðru eins og þau ættu að fara inn í hringinn og hefja hnefaleika- keppni. Það voru ákafar deilur, síðan langar, ólundarlegar þagn- ir. Eitt kvöldið sneru þau bara baki hvort við öðru og sögðu „góða nótt“, en kysstust ekki. Það var í fyrsta sinn í sjö ár. Daginn eftir hringdi Jónatan heim, og fékk þessi skilaboð frá frú Engel: „Frúin er því miður ekki heima. Ég held hún sé í golfklúbbnum.“ LAGLEGT! hugsaði Jónatan. Já, svo sannarlega. Hér sit ég í daunillri skrifstofu guðslangan daginn og þræla eins og jálkur OKTÓBER, 1954 25

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.