Heimilisritið - 01.10.1954, Síða 28

Heimilisritið - 01.10.1954, Síða 28
-----og hún getur farið út og leikið golf. Anna hefur breytzt, hugsaði hann. Fyrst, þegar við vorum gift, var gaman að gera ýmislegt í sameiningu, jafnvel smávægilega hluti. Hann minnt- ist gönguferða um skóginn, og að þau höfðu haldizt í hendur í bíó. Og nú var einungis hring- iða samkvæmislífsins. Golf- klúbbur! Kokkteil-veizlur! Gest- ir til kvöldverðar! Það var satt hjá honum, þau höfðu breytt heimili sínu í veitingahús. Af hverju gátu þau ekki verið eins og áður? Nú voru þau aldrei eins og þau áttu að sér. Ef til vill, ef þau hefðu ekki fengið ráðskonu-------. En hann vissi, að Anna var ófús að afsala sér frú Engel. HÚN hugsaði á sömu leið. Hún reyndi að komast til botns í hlutunum á leiðinni heim úr golfklúbbnum. Það var ekki af því, að hún elskaði Jónatan ekki framar. Það var bara þetta, að þau skemmtu sér ekki saman lengur. Þau höfðu ekki tíma til hversdagslegra hluta, sem þau höfðu skemmt sér við áður. Þau gáfu sér ekki tíma til að unnast. Einu sinni hafði hver dagur ver- ið þeim mikilvægur. Nú liðu dagarnir alltof fljótt. Hún mundi aldrei hvort heldur var fimmtu- dagur eða föstudagur án þess að líta á dagatalið. Húshjálpin hafði gert þeim lífið erfiðara, í stað þess að létta það. En Anna vissi, hversu mjög Jónatan hafði ver- ið umhugað að fá hana. — Hon- um myndi aldrei koma til hugar að láta frú Engel fara. Þegar Anna kom heim, sagði frú Engel henni, að Jónatan hefði hringt. Hún leit á klukk- una — hún var hálfsex — hann gat komið á hverri stundu. En í því hringdi síminn, og Anna fann strax á sér, að það var Jónatan — og það var eins og hún vissi, hvað hann myndi segja. „Ég kem ekki heim í kvöld,11' sagði hann. Hún reyndi áð tala rólega og hiklaust. „Hvað er að, góði? Misstir þú af lestinni?" Röddin var hörð og beisk. „Hefurðu ekki heyrt það? Það hefur verið grenjandi stórhríð, og lestirnar komast ekki áfram.“ „Jónatan," sagði Anna. „Það er miður júní.“ „Hverju skiptir það?“ spurði hann. „Lestirnar ganga ekki. Húsbóndinn óskar, að ég borði með sér. Þú getur svo sjálf ráð- ið, hverju þú trúir. Að minnsta kosti kem ég ekki heim!“ „Jónatan, ég bið þig — komdu heim. Við verðum að tala sam- 26 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.