Heimilisritið - 01.10.1954, Blaðsíða 40
Frakkar gætu grafið gegnum
Panamaeiðið. Svo mikið var
mannfallið úr þessum sjúkdóm.
að sagt er, að Fransmaður liggi
grafinn undir hverju þverbandi
Panamajárnbrautarinnar. Gula-
sóttin var sá faraldur, sem gerði
Panama að „Gröf hins hvíta
manns“, þar til Gorgas hershöfð-
ingi gerði þær ráðstafanir, sem
sigruðust á henni. í Bandaríkj-
unum óttast nú enginn, að Gula-
sóttin komi upp. En árið 1783
féllu 10% af íbúum Fíladelfíu
í gulu-sóttinni. Eftirfarandi
skýrsla er lýsing á ástandinu þá:
„Yfirþyrming íbúa Fíladelfíu
var óskapleg. Örvæntingu og
skelfingu mátti lesa í andliti
næstum hvers manns. Margir
þeir, sem lifðu, lokuðu sig inni í
húsum sínum og þorðu ekki að
ganga um strætin. .. . Líkum
hinna merkustu borgara, jafn-
vel þeirra, sem ekki létust úr
pestinni, var ekið til grafar á
vagngrind án allrar viðhafnar
eða fylgdar vandamanna, með
einum negra í ekilsæti. Fólk
hörfaði undan í skyndi, ef það
mætti líkvagni. Margir notuðu
aldrei gangstéttina, gengu held-
ur ávallt á miðri götu, til þess
að vera sem lengst frá húsum,
sem fólk hafði dáið í. Vinir og
kunningjar forðuðust hver ann-
an og létu nægja að kinka kolli
kuldalega, er þeir mættust á göt-
um úti. Hinn gamli siður, að
takast í hendur, komst svo gjör-
samlega úr tízku, að mörgum
varð á að hörfa undan óttaslegn-
ir, ef þeim var rétt hönd. Litið
var á þann, sem bar einhver
tákn sorgar, svarta slæðu eða
annað, sem hreina eiturnöðru,
er allir forðuðust að koma ná-
lægt, og margir hældu sér af því„
hve snjallir þeir væru í því, að
fara áveðurs framhjá hverjum
sem þeir mættu. Það má teljast
sennilegt, að London hafi á síð-
ustu mánuðum Svartadauða
sýnt meiri merki skelfingar en.
Fíladelfíuborg á tímabilinu frá
24. eða 25. apríl til síðustu daga
septembermánaðar. Meðan þetta
hryggilega ástand hélzt, og fólk
var á yztu brún örvæntingar, er
varla að undra, þótt hinir ömur-
legustu atburðir ættu sér stað,
atburðir sem virtust benda til
fullkominna slita á nánustu
böndum þjóðfélags og fjöl-
skyldu. Hvem myndi ekki hrylla
við að hugsa til eiginmanns, sem
yfirgefur konu sína, sem hann
hefur búið með í mannsaldur, á
síðustu kvalastundum hennar;
eða konu, sem hleypur frá eigin-
manni sínum á banasænginni;
eða foreldra, sem hika ekki við
að yfirgefa einkabarn sitt í neyð-
inni, og barna, sem hlaupa frá
38
HEIMILISRITIÐ