Heimilisritið - 01.10.1954, Side 49
aðrar manneskjur, Steve og
Beth.
Því hjónaskilnaðir komu okk-
ur aldrei til hugar. Við gátum
ekki lagt heimili okkar 1 rústir.
Auk þess átti Neil tvö börn. Svo
við héldum áfram og trúðum
því, að ást okkar væri eilíf.
Trúðum því, að guð hefði valið
okkur til að reyna hina sárustu
kvöl — ást án vonar.
Og þó var hún sæt, ó, hversu
sæt ást okkar var — því allir
forboðnir ávextir þykja sætast-
ir.
Og svo var öllu lokið. Ástin,
sem í mínum augum var sú dá-
samlegasta í heiminum, endaði
einn dag, þegar yörubíll rann
til á hálku, rakst á bíl Neils og
drap hann.
Maðurinn minn hafði átt við-
skipti við Neil, og lögreglan fann
símanúmer hans efst á blaði í
vasabók Neils. Svo þeir hringdu
til hans, þegar Jeth reyndist
ekki vera heima. Steve kallaði
strax á mig, hás af geðshrær-
ingu.
„Farðu yfir um til Beth,“ sagði
hann. „Hún er sennilega úti með
börnin. Mér þykir fyrir því að
biðja þig þess, góða — en þú
verður að vera hjá henni.“
Ég hafði engan tíma til að
gráta, ég hafði engan rétt til að
gráta. Gat ég grátið úr mér aug-
un útaf missi elskhuga? Ég varð
að bæla niður minn eigin harm
til að hjálpa Beth. Það var það
örðugasta, sem ég hafði nokkru
sinni oi'ðið að gera. . . .
Ég hjálpaði henni að annast
útförina og gæta barnanna. Og
ég var alveg róleg, en það var
ekki fyrir neina viljafestu af
minni hálfu, heldur var ég of
lömuð til að finna til, svo ég
gerði allt ósjálfrátt.
En þegar líkkista Neils var
látin síga niður í gröfina, fann
ég sjálfa mig gefa eftir. Mig
langaði til að æpa, fleygja mér
ofan á hana. Ég neyddi sjálfa
mig til að horfa upp í bláan him-
ininn, og allt í einu var sem mér
létti. Ást okkar hafði verið dá-
samleg; hin fullkomna ást. Það
var ást, sem við áttum ein, jafn-
vel í dauðanum, ég gat ekki deilt
henni með neinum, með því að
ljóstra upp, að hún hefði verið
til. Ég, sem hafði staðið nær Neil
en nokkur annar, myndi standa
nærri honum að eilífu. Okkar
leynda ást myndi endast að ei-
lífu — og tengja okkur saman.
Viku eftir útförina bað Beth
mig bónar. Vildi ég athuga fyrir
hana fatnað Neils og ganga frá
honum? Hún ætlaði að gefa
hjálpræðishernum hann. En hún
gat ekki fengið sig til að gera
það sjálf.
OKTÓBER, 1954
47