Heimilisritið - 01.10.1954, Qupperneq 54
gluggarnir hefðu verið svolítið
opnir um nóttina, höfðu hin
skjótu og sterku eituráhrif drep-
ið allt kvikt í herberginu. Eftir-
lætisfugl Breeses lá dauður í
búri sínu og fjöldi flugna lá
dauður í gluggakistunni. Dökk-
græn vindutjöld voru næstum
dregin fyrir gluggana, og þess
vegna var hálfdimmt .1 herberg-
inu, þótt sólskin og blíða væri
úti.
Böndin fóru smátt og smátt
að berast að tveimur ungum
mönnum, sem báðir höfðu nægi-
lega efnafræðiþekkingu til þess,
að þeir hefðu getað framleitt
eiturgasið á þann hátt, sem gert
hafði verið. Þeir voru báðir í
þjónustu hins myrta, og lögregl-
an fékk nokkurn veginn jafn-
sterkan grun á þeim báðum.
E. Breese Walters, systurson-
ur og eini eftirlifandi ættingi
Ellingtons Breeses, var annar
hinna grunuðu. Hann bjó á
heimili frænda síns. Hinn var
Adam Boardman, einkaritari
hins myrta og trúnaðarmaður.
Báðir kyáðust vera saklausir;
báðir töldu sig hafa fjarveru-
sannanir. Og að því er lögregl-
an frekast komst að, höfðu þeir
báðir bezta orð á sér, virtust
ekki skulda neinum neitt né yf-
irleitt vera í nokkrum vandræð-
um. Þeir virtust báðir taka sér
þennan sorglega atburð mjög:
nærri.
Hvorugur hinna ungu manna
sýndist líklegur til þess að hafa
fengið af sér að fremja jafn við-
bjóðslegan glæp. En þrátt fyrir-
það, þóttist lögreglan hafa á-
stæðu til að álíta — einkum me5
tilliti til erfðaskrár hins myrta
— að annar hvor þeirra væri
sekur. Samkvæmt erfðaskránni
átti helmingur eignanna, eða um
það bil ein miljón dollara, að
skiptast jafnt milli systursonar-
ins, E. Breeses Walters, og
einkaritarans, Adams Board-
mans. Hinn helmingurinn átti
að renna til ýmissa góðgerða-
stofnana. Ákvæði erfðaskrárinn-
ar, sem gerð var fyrir fimm ár-
um, voru á allra vitorði.
Walters og Boardman höfðu
ávallt umgengizt hvorn annan af
kurteisi og velvild, en um náinrt
kunningsskap þeirra á milli
hafði aldrei verið að ræða. Hvor
um sig kvaðst alveg viss um sak-
leysi hins.
Lögreglulæknirinn skoðaði
líkið klukkan hálf tíu um morg-
uninn. Hann kvað upp þann úr-
skurð, að Breese hefði látizt fyr-
ir a. m. k. fjórum klukkustund-
um, og jafnvel gætu verið liðnar
allt að tíu klukkustundir frá því
hann andaðist. Allt benti til
þess, að hann hefði gefið upp
52
HEIMILISRITIÐ