Heimilisritið - 01.08.1958, Page 5
um sínum með sjalið sitt og í
fallegasta pilsinu sínu.
„Þarna er hún,“ segir hr.
Hicks. „Mamma mín, stattu við
hliðina á henni, Tommy.“
Fjölskyldan er ólm að segja
okkur frá því, hvað amma sé dá-
samleg, en gamla konan er ekki
mállaus heldur. ,,Hver ert þú
nú ? Æ, já, þú ert Tommy. Eg
þekki þig." Hún sér gítarbrjóst-
næluna hans Tommy. ,,Ég sé að
þú hefur tekið fiðluna þína með
þér.“
Amma gamla er ekkert upp-
veðruð þó að hún hafi frammi
fyrir sér rokk- og roll konunginn
í Englandi. ,,Kanntu ekki að
rokka, amma ?“ ,,Jú, að minnsta
kosti þegar ég er búin að fá einn
hressilegan bjór.“ Hún lyftir upp
fótunum, en grettir sig. ,,Það eru
hnén. Það er allt í lagi með mig
nema hnén.“
Fjölskyldan segir okkur frá
ömmu gömlu. ,,Hún átti 13 börn.
Elzta dóttirin er 75 ára. Afkom-
endurnir eru vafalaust orðnir 150
ef öll barnabarnabarnabörnin eru
talin með. Við áttum heima í
49 ár í sama húsinu, en svo var
það rifið.“
Það er augljóst mál, að Tommy
Hicks, öðru nafni Tommy Steele,
er í miklu uppáhaldi hjá fjöl-
skyldunni þó að úr 150 börnum
börnum sé að velja.
Honum finnst ekkert athuga-
vert við það. Hann segir gamla
fjölskyldubrandara hlæjandi. —
,,Manstu þegar þú fórst í dýra-
garðinn með mig og Roy, Rósa ?
Þegar þú skildir okkur eftir hjá
apabúrinu á meðan þú fórst að
púðra þig, og Roy týndist ?
Manstu ? Ég man ennþá hvað þú
skammaðir mig. ,,Bíddu þangað
til þú kemur heim. Bíddu þang-
að til mamma heyrir um þetta.
Þú þóttist ætla að líta eftir hon-
um.“ — Svona hélztu áfram og
lamdir mig við hverja setningu.
Já, ég man eftir því. Ég hataði
þig í marga mánuði á eftir,
Rósa.“
Það er Ijóst af öllu, að það er
mikil samheldni í Hicks-fjöl-
skyldunni.
Tommy er ekki mikið að hugsa
um peninga, þó að umboðsmað-
ur hans hafi mikinn áhuga fyrir
þeim. Hann vill að Tommy gangi,
í fötum, sem kosta 50 pund. —
,,Hvað er eiginlega að fötunum
mínum. Þau voru í bezta lagi
þegar þú uppgötvaðir mig.“ —
Tommy var spurður hvernig
hann myndi snúast við því, ef
áhuginn fyrir rock og roll dvín-
aði með öllu. ,,Þá fer ég aftur á
sjóinn," sagði Tommy og brosti
gleitt. ,,Þá spila ég bara fyrir
sjálfan mig í kojunni eins og ég
gerði áður. £g er búinn að hafa
HEIMILISRITIÐ
3