Heimilisritið - 01.08.1958, Blaðsíða 26
í ljós, að þetta var kraftalegur
karlmaður og ekkjan var búin til
af honum.
PÓSTURINN er notaður í
margs konar öðrum svikum og
svindli. Þekktur skartgripasali í
Ziirich var svo heimskur, að
hann tók sem góða og gilda vöru
meðmælabréf frá fyrirtæki einu
í Amsterdam. — Meðmælabréf
þessi voru send honum og þar
kynntir tveir sölumenn firmans,
en skartgripasalinn tók ekkert eft-
eftir því, að bréfin voru rituð á
bréfsefni eins fínasta hótelsins í
Zurich.
Hann tók mjög vel á móti sölu-
mönnum þessum. Það reyndist
vera karlmaður og aðlaðandi eig-
inkona hans. Skartgripasalinn
sýndi þeim mikið safn af rándýr-
um skartgripum og demöntum.
Konan leit mjög áköf á demant-
ana, en allt í einu gaf hún frá
sér stunu og féll á gólfið, en
bakkinn með demöntunum féll
einnig á gólfið og hinir dýru
steinar ultu út um allt.
Skartgripasalinn náði strax í
sterkan drykk og konan náði sér
brátt. Á meðan hafði maður
hennar tínt upp demantana og
sett þá í bakkann. „Þetta er allt
í lagi,“ sagði hann. ,,Konan mín
þolir oft ekki að sjá demanta,
þeir hafa svo æsandi áhrif á
hana. Hún fær þá einhverja van-
líðan.“
Tveimur dögum seinna komst
skartgripasalinn að því, hvernig
leikið hafði verið á hann. Yfir-
liðið hafði veitt eiginmanninum
tækifærið, sem hann þurfti til
þess að stela hinum raunverulegu
demöntum en láta verðlausa
glerhnullunga í þeirra stað. —
Skötuhjúin höfðu rænt demönt-
um fyrir tíu þúsund sterlings-
pund.
EINMANA piparkerlingar eru
yfirleitt of gætnar til þess að láta
blekkja sig með bréfaskriftum.
Þó var einn klókur óþokki í
Frakklandi, sem hafði tugi þús-
und franka út úr einmana pipar-
kerlingum með því að lofa þeim,
að hann myndi senda þeim
magnaðan ástardrykk í staðinn.
Við rannsókn kom í ljós, að þessi
ástardrykkur var ekki annað en
litað vatn. Þegar lögreglan hand-
tók manninn, sýndi hann henni
fjölda bréfa frá ánægðum við-
skiptavinum. — Margar konur
höfðu skrifað honum, að eftir að
hafa drukkið þennan drykk,
hefðu þær öðlazt á ný ástar-
drauma og sælu æskuáranna, og
meira en það, margir karlmenn
hefðu leitað ásta þeirra á eftir
þó að þeir hefðu aldrei viljað líta
við þeim áður.
24
HEIMILISRITIÐ