Heimilisritið - 01.08.1958, Blaðsíða 15
Hún skrifaði æsifréttir
Svikulir embættismenn og óþokkar óttuðust
hana eins og pestina
JOSEPH PULITZER, eigandi
stórblaðsins ,,The World'* og
voldugasti blaðaútgefandi í New
York á þeim tímum, starði kulda-
lega á lágvöxnu, hrokkinhærðu
stúlkuna, sem hafði setið um
hann á skrifstofu hans í þrjá
daga, og hafði loks tekizt að kom-
ast inn.
,,Hvað viljið þér mér eigin-
lega spurði hann hvasst.
,,Ég vil fá atvinnu sem blaða-
maður,“ svaraði stúlkan stilli-
lega.
Pulitzer hristi höfuðið. Blaða-
útgefendur í New York höfðu
það ekki til siðs, að láta korn-
ungar stúlkur hafa atvinnu sem
blaðamenn, tuttugu og eins árs
stelpukjána án nokkurrar reynslu.
En þessi stúlka var með hug-
mynd, sem Pulitzer leizt vel á.
Mánuðum saman hafði verið
uppi orðrómur um ómannúðlega
meðferð sjúklinga á geðveikra-
hælinu á Blackwell-eyju. Þessi
smávaxna stúlka frá Pittsburgh;
bauðst nú til þess að leika geð-
veikisjúkling og láta loka sig
inni á hælinu, en síðan ætlaði
hún að skrifa greinaflokk um á-
standið þar. Þetta hafði aldrei
verið reynt áður og Pulitzer
fannst hugmyndin góð.
,,Allt í lagi, gerðu það,“ sagði
hann. ,,En eftir á að hyggja,
hvað heitirðu annars?“
,,Ég heiti Nellie Bly,“ svaraði
stúlkan og tifaði út úr skrifstof-
unni.
Þremur vikum seinna var nafn
hennar orðið frægt meðal blaða-
lesenda í New York. Hún hafði
verið tíu daga á geðveikrahælinu
og frásagnir hennar, sem birtust
á forsíðu blaðsins tvo daga í röð,
höfðu vakið feikna mikla athygli
og viðbjóð allra hugsandi manna
á kjörum sjúklinganna þar.
Hún lýsti því, hvernig sjúk-
13
heimilisritið