Heimilisritið - 01.08.1958, Qupperneq 10

Heimilisritið - 01.08.1958, Qupperneq 10
efni á því að greiða honum haerra kaup, en hann gat útvegað hon- um vinnu í hljóðfæradeildinni í stórverzlun í bænum. — Ralph keypti trúlofunarhringana fyrir okkur og það leið ekki á löngu þar til við vorum svo heppin, að finna litla íbúð til leigu. Og all- an þennan tíma hafði ég ekki haft neinar efasemdir. Hvað gat þá eiginlega verið að mér núna ? ÉG FÓR í slopp og gekk nið- ur. Fjölskylda mín var búin að borða morgunmatinn, en pabbi var enn að drekka te. Mér fannst hann allt í einu vera orðinn svo gamall og ellilegur og óvenju- lega þreytulegur. Hann reyndi að gera að gamni sínu, en það fór fyrir ofan garð og neðan hjá mér. ,,Jæja, það er eins gott að reyna að venja sig við þetta,“ sagði hann. ,,Eftir fáein ár kemur að Betsy.“ Eg leit til Betsy, sem var að þvo upp. Það var svo margt, sem ég vildi segja henni, en ég gat það ekki. Hún mátti ekki þjóta í hjónaband þó að hún lenti í ein- hverju ástarævintýri, sem henni þætti glæsilegt. Brúðkaupið var ekki nema lítill hluti af hjóna- bandinu. £g yrði að búa til mat milljón sinnum, þvo þvott, strjúka lín og stoppa sokka. Eg myndi verða feit og leiðinleg og Ralph myndi verða gamall og þreytulegur og ekki vitund róm- antískur. Mér leið skelfilega illa. — Mamma hafði eitt sinn verið fal- leg og pabbi hafði eitt sinn ver- ið eftirsóknarverður. En að sjá þau núna ! Áttum við Ralph ekki annað framundan en þetta — að verða leiðinleg, miðaldra hjón ? Ég hafði ekki skemmt mér mik- ið og nú myndi ég alls ekki fá að skemmtá mér neitt. Eg hljóp frá kaffibollanum upp á loft. Ég reif pinnana úr hárinu og greiddi mér vandlega. Það var orðið um seinan að snúa við. 0, hefði það ekki verið betra ef við Ralph hefðum hætt að vera saman eftir að við rifumst í fyrsta skipti ? Þetta hafði ég munað þegar ég lá andvaka nóttina áður. Við Ralph áttum það til að kýta. Hann var mjög skapmikill og ég líka. Hann var ekki alltaf góður og nærgætinn. Ég gat alls ekki munað út af hverju þetta fyrsta rifrildi okkar hafði byrjað, en ég man að við urðum bæði skömm- ótt og hávær, og hann hafði æpt á mig og skellt dyrunum á mig án þess að bjóða góða nótt. Hann kom ekki aftur fyrr en eftir tvo daga, og hann bað mig aldrei 8 HEIMILISRITIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.