Heimilisritið - 01.08.1958, Page 50

Heimilisritið - 01.08.1958, Page 50
eins og hver önnur. Og nú fannst mér allt í einu gamla dauf- lega heimilið okkar þrungið lífi og fjöri. II LOKSINS voraði á ný. Vaknandi starfskraftar mínir og starfslöngun höfðu svipt af mér fjötrun sinnileysisins, sem ég leið undir í vetur. Ég eyddi nú ekki lengur tímanum til einskis, eins og þá, heldur lék ég á hljóðfæri, kenndi Sonju undirstöðuatriði tónlistarinnar og las mikið í bókum. Oft gekk ég mér til skemmtunar í garðinum okkar og reikaði kannske tímum saman um trjágöngin, eða settist á bekk og sökkti mér niður í draumrænar hugsanir um framtíð- ina. Á fögrum mánaskinsnóttum, sat ég iðulega við gluggann minn og beið þar sólaruppkomunnar. Stundum kom það meira að segja fyrir að ég hljóp út í garðinn á náttklæð- unum og stiklaði á tánum niður að vatnsborði tjarnarinnar, og einu sinni gekk ég að næturlagi yfir víðáttumikla flat- neskjuna hringinn í kringum alla landareignina. Mér væri það ómögulegt nú, að rifja upp eða botna í öll- um þeim framtíðarórum og dagdraumum, sem ég lifði í þetta vor. Svo óraunhæfar voru allar þær óskir og þrár, sem ímyndunaraflið vakti í brjósti mér. í maímánuði kom Sergius Michailowitsch heim úr ferða- lagi sínu eins og hann hafði lofað okkur. Hann kom að kvöldlagi í fyrstu heimsókn sína til okkar, einmitt á þeim tíma sólarhringsins, er við væntum hans sízt. Við sátum að tedrykkju úti á svölunum. Garðurinn okkar var í fullum blóma og í blómskrýddum trjárunnum höfðu næturgalarnir búið sér hreiður. Vafnings- viðurirfri rétti fram brumhnappa sína í hvítum og rauðblá- um reifum, til að boða fæðingu blómsins. Ljósa birkilaufið varð gagnsætt í kjarna kvöldsólarlagsins og náttfallið breiddi sig yfir grasflötinn. Síðustu hljómar frá annríki dagsins dóu út í öskri gripa- hjarðanna, sem verið var að reka á stöðul. Vikadrengurinn 48 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.