Heimilisritið - 01.08.1958, Síða 63

Heimilisritið - 01.08.1958, Síða 63
Þangað kom gífurlegur mann- söfnuður og varla var stætt í saln- um. Fólkinu fjölgaði um allan helming þegar frægur mynd- höggvari skoðaði risann og kall- aði á blaðamenn og tilkynnti þeim, að hér væru brögð í tafli. Myndhöggvarinn sagðist hafa meitlað lítinn bút úr risanum og komið hefði í ljós, að efnið í ris- anum væri hvorki steinn né stein- gert hold, heldur ósköp venju- legt krítarefni, sem notað er í gips. Þegar hér var komið sögu, voru Newell og Hull búnir að hafa 50 þúsund sterlingspund upp úr því að sýna risann, og það var á allra vitorði, að þeir félagar voru saman í þessu svindli, og að fyrirtæki eitt hafði keypt 60% hlut í þessu braski fyrir 10 þús- und pund. Þrátt fyrir þetta hélt fólk áfram að skoða risann og peningarnir streymdu inn. Það var farið með risann til New York og þar sett upp stórt skilti: ,,Er þetta fyrsti maðurinn — eða eru þetta svik ?“ Skömmu seinna opnaði hinn frægi forstjóri fjölleikahússins Barnum’s, Phi- neas Barnum, sýningu á öðrum risa, sem hann sagði að væri hinn upprunalegi risi. Málið kom fyrir dómstólana og Hull og Newell reyndu að fá úr- skurð réttarins um að Barnum væri bannað að sýna sinn risa, en sá úrskurður fékkst ekki. Nú voru risarnir orðnir tveir. Myndhöggvara einum var leyft að meitla gat á hausinn á risa Hull og Newells, og hann lýsti yfir því, að hann hefði ekki fund- ið neinar leifar af steingerðum heila. Þó vildi hann halda því fram, að ekki væru nein brögð í tafli. Blaðamenn voru á höttunum og reyndu að komast til botns í þessu máli. Frú Newell gat ekki sagt þeim annað um samband Newels og Hull, en það, að mað- ur hennar hefði aldrei haldið á- fram leitinni að vatninu eftir að risinn fannst, og allt benti til þess að leitin að vatninu hefði verið sviðsett og blekking ein. Blaðamennirnir fóru að kynna sér fortíð Hulls og komust þá að sendingunni á ,,vélunum“, sem vógu fimm lestir. Þeir komust að því, að hann hafði keypt stórt stykki af krítarefni fyrir eina bjórtunnu. Þeir litu á reikninga járnbrautarfélagsins og komust að því, að Hull hafði sent krítar- efnið til Newels. Þeir fundu einnig steinsmið, sem bjó skammt frá Newell, og hafði höggvið risinna til svo að hann líktist manni. Þegar Hull og Newell heyrðu þetta, játuðu þeir svikin og sögðu frá því, að HEIMILISRITIÐ 61

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.