Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Qupperneq 46

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Qupperneq 46
40 NÝJAR KVÖLDVÖKUR »Þú ert fantur«. »Það er sennilegt, en við vorum áðan að tala um þýfi, sem eftir er að skila og það er best að vinda sjer að því, — það er orðið framorðið og jeg vil helst fara að hvíla mig«. »Farðu til fjandans, þú færð enga pen- inga«. »Nú veistu það fyrir víst, Einar, að jeg hefi í öllum höndum við þig og mjer er það alvara, að fara ekki hjeðan fyr en þú hefir gi*eitt þetta fje að fullu. Jeg þarf ekki annað en að klappa þjer á kinnina aftur, til þess að sannfæra þig um það, að þú verður að láta þjer það lynda, að jeg fái þau erindislok, sem jeg tel rjettmæt«. »Jeg hefi enga peninga, — eða ekki svo mikla, sem þú ert að heimta«. »Það er ekki satt, þú hefir miklu meira fje í skápnum en sem þessu svarar, — opnaðu hann með góðu, eða jeg fer með þig eins og áðan«, og hnefi Sigvalda seig hægt og ógnandi upp að kjálkabarði Ein- ars. »Fáðu mjer lyklana, eða —;« hann hvesti augun á Einar. Kaldur sviti spratt út á andliíi Einars, hann hikaði við drykklanga stund, en svo fór hann með titrandi hendi ofan í buxna- vasa sinn og dró upp lyklakippu, sem hann rjetti Sigvalda. Sigvaldi opnaði skápinn í snatri. »í hverju hólfinu?« Hnefinn nálgaðist aftur hægt og sígandi og Einar benti þegjandi á miðhólfið; það var ólæst og dró Sigvaldi þar út allstóran seðlaböggul. Alt voru það 100 kr. seðlar og var raðað saman tíu og tíu fyrir sig. Sigvaldi taldi vandlega fram á borðið 17 þús. 900 kr., en það sem eftir var af bögglinum ljet hann aftur á sama stað í hólfið; svo sneri hann sjer að borðinu og ætlaði að stinga seðlunum á sig. Einar hafði starað þegjandi á seðlana á meðan Sigvaldi taldi þá fram á borðið; brúnirnar sigu eftir því sem talan hækk- aði, augun ætluðu út úr höfðinu á honum, andardrátturinn varð tíðari og blóðið ruddist út í kinnarnar, og um leið og Sigvaldis neri sjer frá skápnum, stökk hann upp af stólnum, greip heljartökum um báða úlnliði Sigvalda og hvæsti yfir- kominn af bræði: »Jeg læt þig andsk..... ekki ræna mig, strákskratti!« Einar ætlaði að neyta þunga síns, þoka Sigvalda upp að skrifborðinu og keyra hann þar undir sig, og hann neytti allra sinna krafta, svo að borð og stólar ljeku á reiðiskjálfi; en Sigvaldi var stæltur eins og stálfjöður, ljet þokast undan í fyrstu, en tókst brátt að vinda hægri hönd úr kreppunni og grípa með henni um olnboga Einars, áður en hann hafði náð nýju taki. Nokkur augnablik streitt- ust þeir við báðir, stynjandi af átökun- um, en þá rak Einar upp dimt hljóð og slepti snögglega öllum tökum; hann var orðinn náfölur aftur, svitinn rann niður andlit hans og vinstri handleggurinn hjekk máttlaus niður, — geislabeinið var úr liði við olnbogann. Það sá engan skjálfta á Sigvalda eftir viðureignina; hann hagræddi fötum sín- um í snatri, greip seðlana af borðinu og stakk þeim í brjóstvasa sinn. »Því varstu að þessu?« sagði hann 1 á— vítunarróm; »jeg var búinn að margvara þig við því að fara í handalögmál við mig. Mjer var engin þægð í því að þurfa að fara svona með þig og jeg ætla meira að segja að kippa í liðinn aftur, áður en jeg fer«. Æsingin og sársaukinn höfðu lamað Einar svo, að hann gat engu orði upp komið, heldur stundi hann þungann og ljet fallast upp á legubekk. Sigvaldi gekk til hans, klæddi hann varlega úr jakkan- um og kipti snögt í liðinn; það heyrðist lítið urg um leið og skall í.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.