Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Qupperneq 67
N. Kv.
AUGLÝSINGAR
XIII
Góðar bækur handa ungum og gömlum
FJÓRAR UNGAR STÚLKUR í SUMARLEYFI. Jón Sigurðsson skólastj. þýddi.
Fjórar ungar stúlkur leigja hús uppi í sveit og dvelja þar sumarlangt. Sagan
lýsir búskap stúlknanna og ævintýrum þeim, er þær lenda í. Sagan er fjörug
og bráðskemmtileg fyrir stúlkur um fermingaraldur.
HANNA. Víglundur Möller þýddi. Eva, Randí, Ástríður og Hanna eru aðalsögu-
hetjurnar. Enn fremur ,,Bússi“, „Tossa'* og „Gissi". Karen Maren og Metta
koma lalsvert \ ið söguna. Sagan er falleg og spennandi, alveg eins og telpur
innan við fermingu vilja hafa sögurnar.
NÓA. Ljómandi falleg saga um litla stúlku, káta og fjöruga, sem kom öllum í gott
skap. — Axel Guðmundsson þýddi söguna.
TOPPUR OG TRILLA. Saga um tvíbura. Ereysteinn Gunnarsson þýddi. Allir, er
lesa þessa sögu, munu finna til með tvíburunum og gleðjast með þeim í sögu-
lok. Sagan er fyrir drengi og telpur innan við fermingu.
HEIMA. 1 koti karls og kóngs í ranni. Steingrímur Arason þýddi. Þetta er einhver
sú bezta unglingabók, sem gefin hefir verið út á síðari árum. Það er óhætt að
treysta því. að Steingrímur Arason kennari þýðir ekki aðrar bækur en þær, sem
eru góðar. Bó'kin er full af myndum.
NASREDDIN. Tyrkneskar kímnisögur í þýðingu Þorsteins Gíslasonai..
TUTTUGU SMÁSÖGUR eftir snillinginn Guv de Maupassant. Dr. Eiríkur Al-
bertsson þýddi.
SVEINN ELVERSSON. Skáldsaga um mannkærleika, ást og fegurð, eftir Selmu
Lagerlöf. Verulega góð bók. Axel Guðmundsson þýddi.
LJÓÐMÆLI eftir Jónas Hallgrímsson. Kosta 50 kr. bundin í alskinn.
HALLGRÍMSLJÓÐ, sálmar og kvæði eftir Hallgrfm Pétursson.
SÓL ER Á MORGUN. Kvæðasafn frá 18. og 19. öld. Snorri Hjartarson setti sam-
an. í safninu eru Ijóð og vísur eftir meir en 50 höfunda.
LEONARDO DA VINCI. Skáldsaga um mesta listámann allra tíma, eftir D. Me-
reskowski. Með listaverkamyndum. — Björgúlfur Ólafsson þýddi
ÞÚ HEFIR SIGRAÐ, GALÍLEI. Skáldsaga eftir D. Mereskowski. - Björgúlfur
Olafsson þýddi.
RITSAFN EINARS H. KVARAN, 6 bindi, innbundin í skinnband, er glæsileg
tækifærisgjöf handa ungum og gömlum.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR 50 ÁRA. Glæsilegt minningarrit, með aragrúa af
myndum.
LÝÐVELDISHÁTÍÐIN 1944 er sú bókin, sem sízt má vanta á heimilin. Enn er
tækifæri til þess að eignast þessa óviðjafnanlegu minningabók. Allir sannir ís-
lendingar munu iðrast þess, ef þeir draga það of lengi að eignast bókina. —
Kaupið Lývðeldishátíðina 1944 áður en það verður um seinan og látið hana
minna yður á skyldur yðar við hið unga íslenzka lýðveldi.
MENN OG MINJAR. Af ritsafninu Menn og minjar eru komin út fjögur hefti.
Fylgizt með þessu safni frá byrjun. Fást í hverri bókaverzlun.
H. F. LEIFTUR Sími 7554 — Reykjavík