Læknablaðið - 01.06.1965, Qupperneq 26
2
LÆKNABLAÐIÐ
með efnismagni. Á undanförn-
um áratugum hafa ritstjórnir
á stundum orðið að taka við
greinum, sem að efni og frá-
gangi voru fjarri því að full-
nægja lágmarkskröfum. Fram-
vegis má vænta þess, að svo
mikið berist að af efni, að brátt
megi fara að gera strangari
kröfur til greinahöfunda um
efnismeðferð.
Islenzkan á hinum fræðilegu
greinum liefur lengi verið
vandamál og er að vísu enn.
Þó tel ég, að mjög liafi breytt
til batnaðar í þessu efni, er
kunnáttumaður um islenzkt
mál var ráðinn ritstjórn til að-
stoðar, svo sem greint er frá
í 1. hefti 44. árg. 1960. Einnig
trúi ég, að til bóta horfi á þessu
sviði stofnun fastrar nýyrða-
eða málnefndar, eins og einn
ritstjórnarmanna hefur lagt til.
Sú nýbreytni, sem tekin var
upp í 1. hefti 49. árg., að birta
sérstakar ritstjórnargreinar, ýtir
undir tímabærar athugasemdir
og rekur á eftir stuttum j'fir-
litsgreinum um fagleg efni, al-
menn heilbrigðismál eða félags-
mál, og er það vel.
Læknablaðið kemur nú úl
með nýrri kápusiðu og vonast
til, að lesendum geðjist vel að.
Ritstjórn telur hins vegar enga
ástæðu til að breyta broti blaðs-
ins í nánustu framtíð. Ekki
þvkir heldur ástæða til að
breyta um efnisval og niðurröð-
un, svo að neinu nemi frá því,
sem nú er. Þó mun tekið til
athugunar að birta á sérstök-
um stað í hverju hefti útdrætti
á ensku úr því efni, sem telja
má, að eigi erindi til annarra
þjóða. Mætti hugsa sér slíka
útdrætti í svipuðu formi og birt-
ast í Tidsskrift for Den norske
lægeforening.
A þessum tímamótum er síð-
ur en svo ástæða til að bera
kvíðboga fyrir framtíð Lækna-
blaðsins. Þarf aðeins að líta yfir
síðustu árganga Læknanemans
til að sannfærast um það. Þeir
menn, sem þar hafa svo mynd-
arlega staðið að verki, munu
innan tíðar talca við Lækna-
blaðinu, og í þeirra böndum
mun því án efa vel borgið.
Á þessum tímamótum i sögu
Læknablaðsins vill núverandi
ritstjórn þakka öllum þeim,
sem á undan henni og með
henni liafa unnið að vexti blaðs-
ins og viðgangi. Ritstjórnin
mun hér eftir sem hingað til
kappkosta að gera blaðið svo úr
garði, að það sé verðugur mál-
svari íslenzkrar læknastéttar og'
vettvangur fyrir góðar greinar
um fagleg og félagsleg málefni.
Ó. B.