Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1965, Page 28

Læknablaðið - 01.06.1965, Page 28
1 LÆKNABLAÐIÐ til bess að byggja og relca licil- brigðisstofnanir, lieldur þarf skipulag málanna að vera með þeim liætti, að þetta fé nýtist sem bezt. Að þessu hafa stefnt ýmis iöggjöf og ráðstafanir að undanförnu, ný sjúkrahúsalög, bjúkrunarlög, samfara viðleitni til umbóta í framkvæmdum. Ný læknaskipunarlög, sem síðasta þing afgreiddi, hafa það meginmarkmið, að landsmenn allir eigi kost góðrar lækna- þjónustu. Eru miklar vonir tengdar við það, að í fram- kvæmdinni nái þessi löggjöf settu marki. Ég lief orðið þess var, að menn eru ósparir að finna að, j)ótt reynt sé úr að bæta. Er ekki að slíku að finnn. Ástæðu- laust er þó að gleyma hinu, að við byggingu sjúkrahúsa og annarra heilbrigðisstofnana hef- ur aldrei verið unnið jafnmikið í landinu og nú. í fjölda bæjar- félaga er verið að reisa eða ný- lokið að reisa nýtízku sjúkra- bús, og i höfuðborginni cru ný- byggingar við Landspítala og Borgarsjúkrahús vel á veg lcomnar. Gagnmerk áform eru lil athugunar til ekki minni á- taka fram undan en nú er unn- ið að. Sumum finnst missmíð á þessu öllu. Leila hefði ált eftir erlendri séi'þekkingu. Það var vissulega gert um Borgarsjúkra- liúsið og einnig í sambandi við byggingu Landspítalans. Lækn- arnir hafa óspart verið hafðir með í ráðum, og til þeirra er leitað um bætt skipulag og betri framkvæmdir. Komið bafa fram tillögur um nauðsyn j)ess, að stofnsett yrði sérstakt heilbrigðismálaráðu- neyti. Eg hef hugleitt 1>að mál gaumgæfilega. Enda þótt ég sé ])ess fullviss, að skammt sé und- an að svo verði, bef ég ekki enn viljað gera um það tillögur, þar sem ég bef verið ráðberra heilbrigðismála svo skamman tíma. Lokaorð mín skulu vera þau, að samstillast megi sem bezt og farsælast j>ekking, áhugi og atorka, lil þess að þeir sjúku megi verða heilbrigðir og þeir, sem bágt eiga, megi finna lilýju bjúkrunar og aðhlynningar, svo að land okkar, þó að lítið sé, verði talið til fyrirmyndar á J)essu sviði, og borgararnir finni, að j)eir búa í landi sam- úðar, þar sem hæfileikafólk stundar lækningar og lijúkrun við góð skilvrði, sem J>ví hafa verið búin, með almennum skilningi einstaklinga og stjórn- arvalda á mikilvægi hlutverks j)ess.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.