Læknablaðið - 01.10.1977, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ
203
Guðmundur Vikar Einarsson, Valgarð Björnsson og Árni Ingólfsson
ÓFRJÓSEMISAÐGERÐIR í GEGNUM KVIÐARHOLSSJÁ
Á SJOKRAHÚSIAKRANESS FRÁ 1973—1976.
Á Sjúkrahúsi Akraness var gerð 261
ófrjósemisaðgerð (legal sterilisering) í
gegnum kviðarholssjá á árunum 1973-
1976. Ekki hafa birst margar niðurstöður
og uppgjör um þessa aðgerð, þar sem
tiltölulega fá ár eru síðan farið var að
nota þessa aðgerð í verulegum mæli. En
eftir 1970 hefur þó aðgerðum þessum fjölg-
að mjög. í þessu uppgjöri voru allar sjúkl-
ingaskýrslur athugaðar m. t. t. þeirra at-
riða, sem koma fram hér að neðan. En
auk þess var sjúklingum sendur spurn-
ingalisti varðandi aðgerðina og eftirköst.
NIÐURSTÖÐUR OG
UMRÆÐA
Árið 1973 voru framkvæmdar 5 aðgerð-
ir, árið 1974 40 aðgerðir, 1975 96 aðgerðir
og 1976 120 aðgerðir.
Aldur kvennanna var oftast á bilinu
36-45 ára (66%). 28% voru þó yngri en
36 ára, sjá töflu 1.
TAFLA 1
Aldur:
Aldur Fjöldi %
30 21 8
31-35 52 20
36-40 92 35
41-45 81 31
45 15 6
Samtals 261 100
89% kvennanna áttu 3 börn eða fleiri.
Tvær konur áttu ekkeft barn, þar sem
önnur þeirra hafði misst fóstur á seinni
hluta meðgöngutímanna, samanlagt 5
sinnum vegna tvíhorna legs (uterus
bicornis) og var hún 36 ára þegar að-
gerðin var gerð. Hin konan hafði sykur-
sýki á háu stigi ásamt nýrnasjúkdómi,
sjónhimnusjúkdómi og taugasjúkdómi.
Sjá töflu 2.
TAFLA 2.
Fjöldi fœðinga fyrir aðgerð:
Para Fjöldi %
0 2 1
I 3 1
II 23 9
III 57 22
IV 70 27
V 61 23
VI 45 17
Samtals 261 100
í 69% tilvika var eingöngu gerð lögleg
ófrjósemisaðgerð, en í 27% tilvika var
önnur aðgerð gerð jafnframt og í sömu
svæfingu og var þá langoftast um að ræða
útskaf á legi. Einnig fóstureyðing í 3%
tilfella. Tvívegis var gerð ófrjósemis-
aðgerð stuttu eftir fæðingu, en sú aðgerð
reyndist ekki vel, þar sem önnur konan
varð þunguð 1/2 ári seinna og gekk síðan
í gegnum eðlilega fæðingu og var síðan
gerð önnur ófrjósemisaðgerð í gegnum
kviðarholssjá einum mánuði eftir fæðingu
án nokkurra fylgikvilla. Vegna þessa at-
viks þá höfum við ekki síðan gert ófrjó-
semisaðgerðir skömmu eftir fæðingu, en
höfum í hyggju að taka þá aðgerð fljót-
lega upp aftur með betri tækni. Sjá töflu
3.
TAFLA 3.
Tegund aðgerða:
Tegund Fjöldi %
Ófrjósemisaðgerð 179 69
Ófrjósemisaðgerð fóstureyðing 8 3
Ófrjósemisaðgerð önnur aðgerð 72 27
Ófrjósemisaðgerð eftir fæðingu 2 1
Samtals_______________________ 261 100
Ástæður fyrir aðgerðum voru ýmsar,
en þó oftast vegna aukaverkana af getn-