Læknablaðið - 01.10.1977, Síða 66
222
LÆKNABLAÐIÐ
Á mynd II eru samtals 59 tilfelli af
bráðri eistalyppubólgu, sem lágu á Landa-
koti frá 1971 þar til í maí 1976, að því
tilfelli viðbættu sem lýst var hér á undan.
Það, sem mesta athygli vekur er, að ein-
ungis eru 3 tilfelli í börnum undir 15 ára,
sem er um 5%. Tæp 60% íilfella eru 50
ára og eldri. Átta af þessum 59 tilfellum
gætu flokkast undir þráláta eistalyppu-
bólgu (chr. epididymitis) og þurfti þar
samtals 6 sinnum að gera aðgerð. Hjá hin-
um tilfellunum var 5 sinnum gerð aðgerð,
eða samtals voru gerðar 13 aðgerðir á
eistum hjá þessum 59 manna hópi. Á 5
ára tímabilinu á undan, þ. e. frá 1965 til
1971 eru skráð um 30 tilfelli, en af þeim
er stór hópur með sjúkdómsgreininguna
eistabólga (orchitis).
Á mynd III má sjá orsakir eða hugsan-
legar orsakir eistalyppubólgu hjá þessum
59 sjúkl. Þar sést að tæpur helmingur
hefur haft þvagfærasýkingu og byggist
sú greining ýmist á sögu um gröft í þvagi
eða ræktun frá þvagi. Næst stærsti hóp-
urinn er með óþekktar orsakir eða um
30%. Afgangurinn er síðan þeir, sem hafa
fengið eistalyppubólgu eftir blöðruspegl-
un eða eftir að blöðruhálskirtillinn hefur
verið numinn burtu, eftir áverka og eftir
aðgerðir á pung, svo sem vatnseista
(hydrocele). Það er athyglisvert að eng-
inn úr hópnum hefur verið talinn hafa
þetta sem afleiðingu af lekanda eða hettu-
sótt. Á töflunni má einnig sjá að orsakir
hjá þeim sem yngri eru en 30 ára (13 til-
felli) eru nokkuð ólíkar orsökum í eldri
hópnum (46 tilfelli). í yngri hópnum hef-
ur rúmur helmingur óþekktan uppruna
og hjá fjórðungi má rekja bólguna til
fyrri aðgerða á pung. í eldri hópnum er
Torsion of the testis Epididymitis
16 9
19 18
9 12
44 39
TABLE III. — The relative incidence of
torsion of the testis vs. acute epididymitis
in boys in the few studies where this is
compared.
15 years 15-25 years 25 years
2__________________5________________1_
TABLE IV. -— The age distribution of
the 8 cases with torsion of the testis at
Sct. Joseph’s Hospital, Reykjavík, 1971-
1976.
þvagfærasýking hins vegar langalgengasta
orsökin eða í tæplega 57% tilfella, en
tæpur fjórðungur hefur óþekkta orsök og
5 tilfelli (ca. 10%) koma eftir blöðru-
speglun og brottnám blöðruhálskirtils.
í töflu IV sést aldursdreifing þeirra 8
tilfella, sem hlutu greininguna snúningur
á eista, á 5 ára tímabilinu frá 1971-1976.
Þar eru 2 sjúklingar yngri en 15 ára, 5 á
aldrinum 15-25 ára, en aðeins einn eldri
en 25 ára. Meðalaldur var 18,4 ár. Yngsti
sjúkl. var 4 ára og sá elsti var 37 ára. Hjá
þessum hópi varð að gera 3 eistaaðgerðir,
hjá einum sjúkl. var eistað í náragang-
inum og var sá sjúkl. 4 ára, en í hinum
tveim tilfellunum leið of langur tími frá
því að einkenni byrjuðu, þar til aðgerð
var framkvæmd. A. m. k. einn sjúkl. (15
ára) fékk eista-rýrnun (atrophia testis).
Eistað var fest upp til hliðar hinum megm
(eontra lateral fixatio) hjá 6 af þessum
sjúklingum.
Við athugun á tíðni snúnings á eista
á 5 ára tímabilinu á undan, fannst ekkert
tilfelli og má því segja, að þessi 8 til-
felli séu öll þau, sem komið hafa hingað
á spítalann á síðustu 10 árum.
Samantekt: Við höfum rakið sjúkra-
tilfelli 5 mánaða gamals sveinbarns, sem
hafði bráða eistalyppubólgu sem afleið-
ingu af þvagfærasýkingu og athuguðum
við í því tilefni tíðni þessa sjúkdóms hjá
börnum. Niðurstaðan varð sú, að eista-
lyppubólga er algengari sjúkdómur hjá
sveinum en talið hefur verið, þótt engan
veginn sé hægt að segja að það sé algeng-
ur sjúkdómur. Við fjölluðum um orsakir
bráðrar eistalyppubólgu en um þær eru
skoðanir mjög skiptar. Telja má þó víst,
að stór hluti tilfella komi eftir þvagfæra-
sýkingu. Þá minntumst við lítillega á með-
ferð við eistalyppubólgu.
Talin eru upp helstu atriði, sem geta