Læknablaðið - 15.05.1988, Side 7
LÆKNABLAÐIÐ
171
yngri er því mun hærri en reykingartíðni almennt
meðal íslenskra karla ef tekið er mið af könnun
Hagvangs 1985 (8) og könnun Hjartaverndar
1983 (9) á reykingavenjum íslendinga (mynd 1)
(p<0.01).
Háþrýstingur. Alls höfðu tveir sjúklingar af þeim
29 sem lögðust inn á sjúkrahús verið á
lyfjameðferð vegna háþrýstings. Enginn
sjúklingur hafði háþrýsting í sjúkrahúslegunni né
breytingar á hjartarafriti eða nýrnastarfsemi sem
samræmdust langvinnri hækkun blóðþrýstings.
Blóðfita. S-kólesteról og s-þríglýseríðar voru
mældir hjá 20 karlmönnum af 21 sem gengust
undir kransæðamyndatöku. Mælingarnar voru
framkvæmdar á Rannsóknardeild Landspítalans.
Meðalgildi fyrir s-kólesteról reyndist 6,32 mmól/1
(SD 1,16). í tilviljanaúrtaki Hjartaverndar 1978
(10) var meðalgildi skólesteróls hjá 34 ára
karlmönnum 6,27 mmól/1 (n= 141) (mynd 2).
Munurinn er ómarktækur. S-þríglýseríðar voru
mældir hjá sömu 20 karlmönnum. Meðal þeirra
voru tveir sem höfðu hækkaða s-þríglýseríða ef
miðað er við gildið 2,30 mmól/1. Meðalgildi
s-þríglýseríða í sjúklingahópnum var 1,67 mmól/I
(SD 0,81). í tilviljanaúrtaki Hjartaverndar 1978
(10) var meðalgildið hjá 34 ára karlmönnum 0,94
mmól/1 (n= 141) (mynd 2). Munurinn er
marktækur (p<0.01).
Offita. Upplýsingar um hæð og þyngd lágu fyrir
hjá 19 karlmönnum af 21 sem gengust undir
kransæðakvikmyndatöku. Meðalgildi fyrir
»Body mass index (Quetelet)« var 26,1 (SD 3,6).
Meðalgildi fyrir Brocas-stuðul var 106,25 (SD
14,7). í tilviljanaúrtaki Hjartaverndar 1967-1968
(11) voru meðalgildi sömu stuðla hjá 34 ára
karlmönnum (n= 141) 24,6 og 100. Munurinn er í
báðum tilvikum ómarktækur (mynd 3). í
rannsókn Hjartaverndar 1967-1968 kom í ljós að
34,7% karla á aldrinum 34-61 árs höfðu
Brocas-stuðul >110. í sjúklingahópnum höfðu
fjórir sjúklingar af 19 (21,1%) Brocas-stuðul
>110. Þrátt fyrir að Brocas-stuðullinn fari
hækkandi með aldri og vaxtarlag íslendinga hafi
hugsanlega tekið breytingum s.l. 15-20 ár getur
offita ekki talist algengari meðal ungra manna
sem fá hjartadrep en heilbrigðra jafnaldra þeirra.
Blóðsykur. Meðal þeirra 29 sjúklinga sem
lögðust inn á sjúkrahús var einn sem hafði
insúlínháða sykursýki. Enginn annar hafði
hækkaðan blóðsykur.
Ættarsaga. Meðal þeirra 29 sjúklinga sem
lögðust inn á sjúkrahús voru 15 (51,7%) sem áttu
% daily smokers
[2 Smoking-Hagvangur 1985
^ Smoking-Hjartavernd 1983
Fig. 1. Smoking habits among men suffering
myocardial infarction at the age 25-39 years compared
to two studies of smoking habits among Icelandic men.
mmol/l
10
9
8
7
6
51
4|
3l
21
1 ■
0J
mmol/l
2.04
1.8 (1.67)
. (6.32) (6.27) 1.6 1.4
I mmi 1.2- 1.0 (0.94)
1 ■ . 0.8 0.6 0.4 0.2 0.0J ip|l ■
Ml RS
Mean total serum cholesterol
Ml RS
Mean serum triglycerides
i Ml S RS ÍMI ÍRS
Fig. 2. Total serum cholesterol and serum triglycerides
in palients suffering myocardial infarction at the age of
40 and younger compared to large population (n = 141)
sample of 34 year old men in the Reykjavik study. MI:
patients with myocardial infarction. RS: population
sample of 34 year old men in the Reykjavik study.
Body mass index
Fig. 3. Indexes of body mass and height in infarct
patients 40 years and younger compared to population
sample of 34 year old men in the Reykjavik study. MI:
patients with myocardial infarction. RS: population
sample of 34 year old men in the Reykjavik study.